Gekk á milli í slagsmálum og meiddist

Frá skemmtanalífinu í miðborginni.
Frá skemmtanalífinu í miðborginni. mbl.is/Ari

Maður sem kvaðst hafa reynt að stöðva slagsmál á milli tveggja manna sem hann þekkti ekki hlaut áverka á hendi eftir eggvopn í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Lögreglu barst tilkynning um líkamsárásina rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Maðurinn sem slasaðist sagðist hafa náð að hlaupa frá gerandanum. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 

Þar segir að um klukkan hálf sex síðdegis í gær hafi færeysk kona ekið á staur og umferðarljós. Konan sagðist vera óvön að aka um stór gatnamót og margar akreinar eins og á Íslandi. Enginn meiddist við óhappið. 

Nokkrir voru stöðvaðir í nótt vegna gruns lögreglu um að þeir ækju undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert