Þrjár milljónir dánar vegna Covid-19 Samúel Karl Ólason skrifar 17. apríl 2021 14:31 Undanfarið hafa um þriðjungur allra þeirra sem dáið hafa í heiminum á degi hverjum verið frá Brasilíu. AP/Bruna Prado Rúmlega þrjár milljónir manna hafa nú dáið á heimsvísu vegna Covid-19. Heilt yfir hafa rúmlega 140 milljónir smitast, svo vitað sé. Mögulega er raunverulegur fjöldi látinna þá hærri og jafnvel töluvert hærri.
Þetta kemur fram í gagnagrunni Johns Hopkins háskólans, sem byggir á opinberum tölum. Í frétt AP fréttaveitunnar segir að sérfræðingar telji raunverulegan fjölda látinna vera hærri en vitað sé. Bæði vegna þess að hylmt hafi verið yfir fjölda látinna í einhverjum ríkjum og vegna skorts á greiningu í upphafi faraldursins. Flestir hafa dáið í Bandaríkjunum, samkvæmt áðurnefndum gagnagrunni. Þar hafa rúmlega 566 þúsund dáið. Í Brasilíu hafa tæplega 370 þúsund dáið og í Mexíkó hafa rúmlega 210 þúsund dáið. Covid-19 greindist fyrst í mönnum í Wuhan í Kína í desember 2019. Þann 28. september náði fjöldi látinna í milljón. Þremur og hálfum mánuði síðar, eða þann 14. janúar, höfðu tvær milljónir dáið. Síðan þá eru rétt rúmir þrír mánuðir liðnir. Nú er þó bólusetning komin vel af stað víða en á það þó að mestu við auðugar þjóðir. Víða hefur verið gripið til frekari sóttvarnaraðgerða að undanförnu. Bæði nýsmituðum og látnum hefur farið fjölgandi undanfarna daga, þar sem að um tólf þúsund manns hafa dáið á degi herjum, að meðaltali. Þá hafa allt að 700 þúsund greinst smitaðir á dag. „Þetta er ekki ástandið sem við viljum vera í sextán mánuðum eftir að faraldurinn hófst, þegar við vitum um sóttvarnaraðgerðir sem virka vel,“ hefur fréttaveitan eftir Maríu Van Kerkhove, einum af leiðtogum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Undanfarnar vikur hafa um þrjú þúsund dáið á hverri viku í Brasilíu. Það samsvarar um fjórðungi allra þeirra sem deyja í heiminum. Ráðamenn þar lögðu allt sitt fé á einn framleiðanda bóluefnis og hefur afhending ekki gengið sem eftir. Sömuleiðis hafa Brasilíumenn glímt við skort á verkjalyfjum og súrefni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Merkel vill herða aðgerðir gegn Covid-19 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir því að þingmenn samþykki að veita henni heimildir til að beita ströngum sóttvarnaraðgerðum á svæðum landsins þar sem dreifing nýju kórónuveirunnar er mikil. Hún segir það nauðsynlegt og að meirihluti Þjóðverja styðji hertar aðgerðir. 16. apríl 2021 10:52 Danir taka upp Covid-vegabréf í síma Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur til áframhaldandi notkunar á AstraZeneca bóluefninu sem Danir hafa ákveðið að hætta að nota. Þeir hafa tekið í notkun rafrænt Covid-vegabréf í símum fyrir aðgang að ýmis konar þjónustu. 15. apríl 2021 22:02 Forstjóri Pfizer segir líklegt að fólk muni þurfa þriðja skammtinn Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, segir líklegt að fólk muni þurfa viðbótarskammt (e. booster) af bóluefni við Covid-19 innan við ári eftir að það lýkur bólusetningu. Þá sé sá möguleiki fyrir hendi að fólk þurfi að fara í árlega bólusetningu gegn kórónuveirunni til að viðhalda vernd. 15. apríl 2021 19:09 Danir gætu gefið fátækari ríkjum AstraZeneca-bóluefni Dönsk stjórnvöld kanna nú möguleikann á því að deila skömmtum af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem þau hafa ákveðið að hætta alfarið að nota með þróunarríkjum. Notkunin í Danmörku var stöðvuð vegna fátíðra tilfella blóðtappa. 15. apríl 2021 12:29 Faraldurinn nær nýjum hæðum á Indlandi og 184 þúsund greinast smituð Fjöldi þeirra sem smitast hafa af nýju kórónuveirunni á Indlandi nær nýjum hæðum daglega og er verið að grípa til strangra sóttvarnaaðgerða víða um landið. Samhliða því að milljónir skammta af bóluefnum eru framleiddir í landinu berast fregnir af skorti á bóluefnum og tæplega átta af hverjum hundrað hafa verið bólusettir. 14. apríl 2021 11:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Erlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Innlent Fleiri fréttir Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Sjá meira
Merkel vill herða aðgerðir gegn Covid-19 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir því að þingmenn samþykki að veita henni heimildir til að beita ströngum sóttvarnaraðgerðum á svæðum landsins þar sem dreifing nýju kórónuveirunnar er mikil. Hún segir það nauðsynlegt og að meirihluti Þjóðverja styðji hertar aðgerðir. 16. apríl 2021 10:52
Danir taka upp Covid-vegabréf í síma Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur til áframhaldandi notkunar á AstraZeneca bóluefninu sem Danir hafa ákveðið að hætta að nota. Þeir hafa tekið í notkun rafrænt Covid-vegabréf í símum fyrir aðgang að ýmis konar þjónustu. 15. apríl 2021 22:02
Forstjóri Pfizer segir líklegt að fólk muni þurfa þriðja skammtinn Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, segir líklegt að fólk muni þurfa viðbótarskammt (e. booster) af bóluefni við Covid-19 innan við ári eftir að það lýkur bólusetningu. Þá sé sá möguleiki fyrir hendi að fólk þurfi að fara í árlega bólusetningu gegn kórónuveirunni til að viðhalda vernd. 15. apríl 2021 19:09
Danir gætu gefið fátækari ríkjum AstraZeneca-bóluefni Dönsk stjórnvöld kanna nú möguleikann á því að deila skömmtum af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem þau hafa ákveðið að hætta alfarið að nota með þróunarríkjum. Notkunin í Danmörku var stöðvuð vegna fátíðra tilfella blóðtappa. 15. apríl 2021 12:29
Faraldurinn nær nýjum hæðum á Indlandi og 184 þúsund greinast smituð Fjöldi þeirra sem smitast hafa af nýju kórónuveirunni á Indlandi nær nýjum hæðum daglega og er verið að grípa til strangra sóttvarnaaðgerða víða um landið. Samhliða því að milljónir skammta af bóluefnum eru framleiddir í landinu berast fregnir af skorti á bóluefnum og tæplega átta af hverjum hundrað hafa verið bólusettir. 14. apríl 2021 11:29