„Ekki kærkomin hvíld, en mætum nú öflugri til leiks“ Atli Ísleifsson skrifar 9. júní 2021 10:26 Friðrik Rafnsson, leiðsögumaður og þýðandi, var kjörinn nýr formaður Leiðsagnar - Félags leiðsögumanna á aðalfundi í gær. Vísir/Vilhelm Friðrik Rafnsson var kjörinn nýr formaður Leiðsagnar - Stéttarfélags leiðsögumanna á aðalfundi í gær. Friðrik hefur verið ritari félagsins síðasta árið og tekur við starfinu af Pétri Gauta Valgeirssyni.
Tveir voru í framboði til formanns – Friðrik og Óskar Kristjánsson sem hefur verið gjaldkeri félagsins. Friðrik segir í samtali við Vísi að stétt leiðsögumanna hafi verið algerlega lömuð síðasta rúma árið, líkt og margar aðrar stéttir í ferðaþjónustu. „Við sjáum skýr merki þess að þetta sé að breytast. Fólk er farið að bóka sig og það er allt að síga af stað. Við höfum notað tímann mjög vel, í endurskipulagningu innan félagsins og gera okkur klár. Við höfum líka verið að endurmennta og bæta í fróðleikssarpinn. Við erum klár í viðspyrnuna og viljum gera það mjög faglega og vel. Við höfum aðeins verið vör við það – það eru náttúrulega svartir sauðir alls staðar – en það eru einhver fyrirtæki sem vilja fá menn eingöngu í verktöku eða eru með smá tilbrigði til að nýta sér þetta ástand. Svo hefur maður líka heyrt fleiri fréttir sem betur fer að menn vilji faglærða og reynda leiðsögumenn sem taka vel á móti okkar erlendu vinum,“ segir Friðrik. Lykilfólk Friðrik segir leiðsögumenn líta svo á að þeir séu lykilfólk í ferðaþjónustunni. „Við erum gestgjafar. Ef fólk kemur til landsins og leiðsögumaðurinn nær í það út á flugvöll þá er hann sá Íslendingur sem þau eru með í viku, er andlit íslensku þjóðarinnar út á við. Svo eru að sjálfsögðu hótelstarfsmenn, fólk í veitingageira og svo framvegis, en við erum samfellan og berum ansi mikla ábyrgð á að frí þessa fólkjs takist sem best. Þetta er ofboðslega skemmtilegt starf, en í því felst mikil ábyrgð sem við tökum alvarlega. Eftir að hafa, má segja, hlaupið á færibandi í tíu ár, og margir orðnir ansi langþreyttir í bransanum, þá var þetta auðvitað ekki kærkomin hvíld, en mætum nú öflugri til leiks,“ segir Friðrik.
Vistaskipti Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Guðný og Sigurður Helgi til SI Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Sjá meira