NBA dagsins: LeBron James og Luka Doncic pirraðir en Giannis í miklu stuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2021 15:00 LeBron James í leiknum á móti Toronto Raptors í nótt en hann fór á heimavelli Los Angeles Lakers í Staples Center. AP/Mark J. Terrill Pressan er að magnaðast á lið þeirra LeBrons James og Luka Doncic á lokakafla deildarkeppni NBA deildarinnar í körfubolta.
Eftir tapleiki hjá Los Angeles Lakers og Dallas Mavericks í nótt þá eru liðin nú jöfn Portland Trail Blazers í fimmta til sjöunda sæti í Vesturdeildinni. Liðin í fimmta og sjötta sæti fara beint inn í úrslitakeppnina en liðið í sjöunda sæti þarf að vinna einn umspilsleik til að tryggja sér sitt sæti. Það þýðir að liðið sem endar í sjöunda sæti sem hefði alltaf skilað sæti í úrslitakeppninni gæti því misst af úrslitakeppninni tapi liðið tveimur leikjum í umspilinu. Liðið í 7. sæti spilar við liðið í 8. sæti þar sem sigurvegarinn fer inn í úrslitakeppnina en liðið sem tapar mætir liðinu sem vinnur leik á milli 9. og 10. sætis. LeBron James spilaði sinn annan leik eftir að komið til baka eftir slæm ökklameiðsli og náði ekki að klára þennan. Lakers liðið hefur tapað þeim báðum og alls þremur leikjum í röð. LeBron James drullaði yfir nýja fyrirkomulagið eftir leikinn. „Það á að reka þann sem fann upp á þessu,“ sagði LeBron James pirraður eftir leikinn spurður út í umspilsleikina. Lakers liðið var í toppbaráttunni þegar LeBron James meiddist, vann 21 af fyrstu 27 leikjum sínum, en staðan versnaði mikið í fjarveru hans. LeBron spilaði ekki síðustu sex mínúturnar og 42 sekúndurnar í 114-121 tapi á móti Toronto Raptors í nótt. „Ég vil ná heilsu, ekki bara mín vegna heldur fyrir liðið. Ég verð samt að vera skynsamur með ökklann,“ sagði LeBron James. Önnur pirruð stórstjarna var Slóveninn Luka Doncic sem var rekinn út úr húsi í 99-111 tapi Dallas Mavericks á móti Sacramento Kings. Doncic fékk tvær tæknivillur og fer í leikbann þegar hann fær þá næstu. Luka Doncic var búinn að skora 30 stig áður en hann var rekinn út úr húsi. Doncic skildi ekki af hverju hann fékk seinni tæknivilluna í nótt. „Ég veit ekki hvað ég að segja þegar þú færð tæknivillu fyrir þetta,“ sagði Luka Doncic. Það gæti orðið afdrifaríkt fyrir Dallas Mavericks að missa Luka Doncic í bann á lokasprettinum þar sem liðið er í harðri baráttu við Lakers og svo lið Portland Trail Blazers sem vann sinn fjórða leik í röð í nótt. Giannis Antetokounmpo var aftur á móti í miklu stuði og skoraði 49 stig fyrir Milwaukee Bucks í sigri á Brooklyn Nets þar sem að Kevin Durant var með 42 stig fyrir Brooklyn liðið. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá þessum leikjum sem og flottustu tilþrif næturinnar. Klippa: NBA dagsins (frá 2. maí 2021)
NBA Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu