Börn fái ranghugmyndir og neikvæðar hugsanir eftir neyslu á Spice Nadine Guðrún Yaghi skrifar 10. maí 2021 19:00 Forstöðumaður á Stuðlum hefur áhyggjur af þróuninni og segir að börnin fái ranghugmyndir, sjái alls kyns hluti og fái svo neikvæðar hugsanir eftir neysluna. vísir/Sigurjón Um fjögur prósent tólf til sextán ára barna á Íslandi hafa notað efnið Spice eða rúmlega fjögur hundruð börn. Forstöðumaður á Stuðlum hefur áhyggjur af þróuninni og segir að börnin fái ranghugmyndir, sjái alls kyns hluti og fái svo neikvæðar hugsanir eftir neysluna.
Fréttastofa greindi frá því í lok síðustu viku að dæmi séu um að börn niður í 12 ára séu að reykja Spice. Börnin veipa efnið, sem er hraðvirkandi og mörgum sinnum sterkara en kannabis. Varðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði sagði merki um að yngri börn væru farin að nota Spice. Funi Sigurðsson, forstöðumaður á Stuðlum, tekur undir áhyggjur lögreglu. „Svona síðustu þrjá mánuði hefur þetta verið aðalefnið hjá krökkunum sem eru að koma til okkar,“ segir Funi. Um sé að ræða fjórtán til átján ára börn. Börnin séu með hugmyndir um að Spice sé saklaust efni og minni á kannabis. Það sé ekki raunin. Um sé að ræða hugbreytandi efni. „Þetta er svona meira í anda sýru eða LSD, þau fá ranghugmyndir, sjá hluti, það er eins og eitthvað sé að skríða á manni og fá alls konar skrítnar hugmyndir,“ segir Funi. Þá séu eftirköstin mjög erfið. „Þau verða mjög þung og döpur og fá neikvæðar hugsanir. Við höfum líka séð talsvert aukið ofbeldi og síðan eru jafnvel uppköst og slíkt þegar þau eru í fráhvörfum,“ segir Funi. Ný rannsókn Rannsóknar-og greiningar sýnir að 3,8 prósent barna í 8., 9., og 10. bekk hafi prófað Spice eða um fjögur hundruð börn. Könnunin var lögð fyrir rúmlega ellefu þúsund nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar. Funi segir að það sé auðvelt að fela neysluna í upphafi. Efnið er lyktalaust og ekki er hægt að greina það með hefðbundinni þvagprufu. „Það þarf sérstök Spice próf sem eru mjög viðkvæm, þannig ef efnasamsetningunni er breytt mælist það ekki. Það er tillögulega auðvelt að fela þetta fyrir mömmu og pabba til dæmis,“ segir Funi. Þessi þróun sé áhyggjuefni. „Þau virðast líka vera talsvert fljót að fara í mikla neyslu á þessu,“ segir Funi. Í kvöldfréttum kom fram að börnin væru um eitt þúsund en hið rétta er að þau eru rúmlega fjögur hundruð.
Börn og uppeldi Fíkn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Fleiri fréttir Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Sjá meira