Þrettán smit innanlands – hópsmit í kringum leikskóla í Reykjavík

Í gær greindust fleiri með COVID-19 innanlands en á nokkrum öðrum degi síðan 23. mars. Átta voru utan sóttkvíar og hinir höfðu verið stutt í sóttkví.

Þrettán manns greindust með COVID-19 innanlands í gær. Fólk er hvatt til að fara í skimun við minnstu einkenni.
Þrettán manns greindust með COVID-19 innanlands í gær. Fólk er hvatt til að fara í skimun við minnstu einkenni.
Auglýsing

Þrettán manns greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Þrátt fyrir að fimm af þeim hafi verið í sótt­kví hafði hún staðið stutt yfir, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá almanna­vörn­um.

Þetta er mesti fjöldi smita sem greinst inn­an­lands frá 23. mars, er fjórtán manns greindust með veiruna. Degi síð­ar, 24. mars, ákváðu stjórn­völd að herða sótt­varna­ráð­staf­anir veru­lega og var fyrst slakað á þeim síð­asta fimmtu­dag.

Í til­kynn­ingu almanna­varna segir að af þeim þrettán ein­stak­lingum sem greindust í gær hafi tíu tengsl við leik­skól­ann Jörfa í Reykja­vík, en allir starfs­menn og nem­endur þar eru nú í sótt­kví. Tæp­lega 100 börn eru í leik­skól­anum og starfs­menn eru 33 tals­ins.

„Sam­kvæmt nýlegum leið­bein­ingum um heima­sótt­kví þurfa allir sem dvelja á sama heim­ili að vera í sótt­kví og því má búast við að mjög margir verði í sótt­kví þessu tengt næstu daga,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna. Í dag verður öllum börn­um, for­eldrum og starfs­mönnum boðið að fara í skim­un.

Sótt­varna­læknir og almanna­varnir hvetja líka alla þá sem hafa umgeng­ist starfs­menn eða börn á leik­skól­anum Jörfa síð­ustu vik­una til þess að fara í skimun og á það við um börn jafnt sem full­orðna. Einnig eru íbúar sem búa í næsta nágrenni leik­skól­ans hvattir til að fara í skimun – ástæðan er sögð mikil sam­skipti á milli fólks og krakk­arnir eðli­lega mikið á ferð­inni.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu almanna­varna segir að mik­il­vægt sé að allir sem finni fyrir minnstu ein­kennum sem gætu bent til COVID-19 fari í skim­un.

„Til upp­rifj­unar geta ein­kenni COVID-19 verið mis­mun­andi milli ein­stak­linga og sumir fá væg ein­kenni en þau geta ver­ið: hiti, hósti, and­þyngsli, kvef, háls­bólga, bein­verkir, höf­uð­verk­ur; sjald­gæfari ein­kenni eru ógleði, þreyta, upp­köst og skyndi­legt tap á bragð- og lykt­ar­skyn­i,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fólk ætti að fara í sýna­töku við lok veik­inda

Almann­varnir segja að ef fólk verði veikt ætti það almennt ekki að snúa aftur til vinnu fyrr en það hefur fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu úr sýna­töku, við lok veik­ind­anna, þrátt fyrir að hafa fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu áður, til dæmis við upp­haf veik­inda.

„Stjórn­endur og atvinnu­rek­endur eru beðnir að huga sér­stak­lega að þessu,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent