El Salvador á barmi greiðslufalls vegna Bitcoin-hruns Kjartan Kjartansson skrifar 12. maí 2022 10:43 Tilraun Nayibs Bukele, forseta El Salvador, um að gera rafmynt að opinberum gjaldmiðli virðist hafa beðið skipbrot. Vísir/EPA Efasemdir eru um að ríkissjóður El Salvador geti staðið við skuldbindingar sínar vegna verðfalls á rafmyntinni bitcoin. Ríkisstjórn landsins gerði rafmyntina að lögmætum gjaldmiðli í fyrra.
Virði bitcoin hefur hrunið um fimmtíu prósent frá því að það stóð sem hæst. Ástæðan er meðal annars óvissa vegna stríðsins í Úkraínu, vaxandi verðbólga víða og ákvörðun seðlabanka Bandaríkjanna um að hækka stýrivexti. Að sama skapi hafa ríkisskuldabréf El Salvador fallið í verði. Þau seljast nú á aðeins 40% af upphaflegu verðmæti sínu, að því er segir í spænska blaðinu El País. Fjárfestar eru sagðir byrjaðir að efast um að ríkið nái endum saman á næsta skuldadaga í janúar. Nayib Bukele, forseti El Salvador, lét varúðarorð matsfyrirtækja um óstöðugleika rafmynta sem vind um eyru þjóta þegar hann tilkynnti að landið yrði það fyrsta í heimi til að taka bitcoin upp sem lögmætan gjaldmiðil í september. Forsetinn hefur setið fastur við sinn keip þrátt fyrir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem gæti hjálpað stjórn hans að greiða af erlendum skuldum sínum á næsta ári, hafi hvatt hann til að snúa ákvörðun sinni um bitcoin við. Alþjóðleg matsfyrirtæki hafa þegar lækkað lánshæfiseinkunn El Salvador og sett landið í ruslflokk. Einræðistilburðir og mannréttindabrot Bukele hefur verið sakaður um einræðistilburði frá því að hann var kjörinn forseti árið 2019. Þegar þingið neitaði að fjármagna tillögur hans í öryggismálum lét hann þungvopnaða hermenn sitja um þinghúsið. Þá hefur hann grafið undan fjölmiðlum og mannréttindasamtökum. Að undanförnu hefur stjórn Bukele farið mikinn gegn glæpagengjum sem eru landlæg í El Salvador. Fleiri en 24.000 manns hafa verið handteknir frá því í mars. Mannréttindasamtök segja að hundruð tilkynninga um brot á réttindum hafi borist. Þau segja margar handtökurnar handahófskenndar og ungir menn séu handteknir aðeins vegna þess hvernig þeir líta út og hvar þeir búa, að sögn AP-fréttastofunnar. Neyðarlög hafa verið í gildi frá því í vor sem takmarka meðal annars samkomufrelsi og svipta þá sem eru handteknir réttinum til þess að vera upplýstir um réttindi sín og til að fá lögmann. Á sama tíma hefur Bukele fyllt samfélagsmiðlasíður sínar með myndum af handjárnuðum og blóðugum félögum í glæpagengjum og tekið út reiði sína á mannréttindasamtökum sem gagnrýna aðfarirnar.
Rafmyntir El Salvador Tengdar fréttir Bitcoin löggiltur gjaldmiðill í El Salvador Löggjafarþing El Salvador samþykkti í dag frumvarp um löggildingu Bitcoin sem gjaldmiðils. El Salvador er fyrsta ríki heimsins sem löggildir Bitcoin. Forseti landsins, Nayib Bukele, barðist fyrir frumvarpinu og segir um söguleg tímamót að ræða. 9. júní 2021 11:42 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira
Bitcoin löggiltur gjaldmiðill í El Salvador Löggjafarþing El Salvador samþykkti í dag frumvarp um löggildingu Bitcoin sem gjaldmiðils. El Salvador er fyrsta ríki heimsins sem löggildir Bitcoin. Forseti landsins, Nayib Bukele, barðist fyrir frumvarpinu og segir um söguleg tímamót að ræða. 9. júní 2021 11:42