Fyrrum leikmaður Newcastle sagður ljúga til um aldur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. janúar 2022 08:00 Chancel Mbemba fær ekki nýjan samning hjá Porto þar sem hann er talinn ljúga til um aldur. Serena Taylor/Newcastle United via Getty Images Chancel Mbemba, fyrrum leikmaður Newcastle og núverandi leikmaður Porto, er sagður hafa logið til um aldur. Mbemba hafði farið í aldursgreiningu til að sanna að hann sé fæddur árið 1994, en hefur nú sagt vinum sínum frá því að hann sé fæddur árið 1990.
Þetta herma heimildir portúgalska miðilsins Corriero de Manha. Reynist þetta rétt er þessi 27 ára varnarmaður í raun 31 árs. Að þessum sökum ætlar Porto ekki að framlengja samningi Mbemba við félagið, en núgildandi samningur leikmannsins rennur út í sumar. Mbamba gekk í raðir Newcastle árið 2015 og þá leiddi aldursgreining í ljós að leikmaðurinn væri fæddur árið 1994, eins og hann hefur haldið fram síðan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem aldur varnarmannsins hefur verið dreginn í efa, en rannsókn frá árinu 2013 leiddi í ljós fjóra mismunandi fæðingadaga. Einn þeirra var dagsettur í ágúst 1988, sem myndi þýða að leikmaðurinn væri í raun 33 ára. A report found Chancel Mbemba had FOUR different birthdays recorded 😟He has gone on record to say he was born in 1990. But also claims to have undergone bone tests to prove he was actually born in 1994 🤔Porto aren't happy with any of this and have decided to release him! 😳 pic.twitter.com/6AxLDieh7B— SPORTbible (@sportbible) January 21, 2022 Talið er að Mbemba hafi fyrst logið til um aldur sinn árið 2012 þegar hann gekk til liðs við belgíska liðið Anderlecht frá heimalandi sínu, Kongó. Í rannsókninni sem framkvæmd var árið 2013 sagði knattspyrnusamband Kongó frá því að fæðingarári leikmannsins hafi verið breytt í 1991 svo að varnarmaðurinn gæti tekið þátt á Ólympíuleikunum 2012 þar sem að lið mega nánast eingöngu stilla upp leikmönnum sem eru 23 ára og yngri. Niðurstöður rannsóknarinnar urðu til þess að Mbemba neyddist til að gangast undir líkamleg próf til að sanna aldur sinn. „Ég fór í aldursgreiningu og eins og ég og vinir mínir vitum allir þá sanna niðurstöðurnar hvað ég er gamall,“ sagði Mbemba í samtali við The Mirror árið 2015. „Ég mæti bara og spila fótbolta, ég er ekki að gefa upp neinar rangar upplýsingar. Fólk hefur sagt ýmislegt um fæðingarár mitt og annað í kringum það. Ég sýndi nákvæmlega hver sannleikurinn er.“
Fótbolti Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Körfubolti „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Sjá meira