Innlent

Mennirnir sem lögregla lýsti eftir fundnir

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglustöðin á Hverfisgötu.
Lögreglustöðin á Hverfisgötu. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt myndir af tveimur mönnum sem hún þarf að ná tali af vegna rannsóknar. Mennirnir eru beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík eða í síma 444 1000. 

„Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hallur.hallsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Uppfært klukkan 15:20: Mennirnir eru fundnir að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×