Tveir handteknir vegna líkamsárásar

Tveir voru handteknir vegna líkamsárásar.
Tveir voru handteknir vegna líkamsárásar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás í Árbæ í Reykjavík í gær.

Lögregla mætti á vettvang og í kjölfarið tók við eftirför sem endaði á Kjalarnesi. Tveir voru handteknir vegna rannsóknar málsins og eru viðkomandi meðal annars grunaðir um líkamsárás, akstur undir áhrifum vímuefna, umferðarlagabrot og fleira.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Önnur líkamsárás átti sér einnig stað á höfuðborgarsvæðinu en ekki liggja fyrir upplýsingar um það mál að svo stöddu. Tekið er þó fram að vitað sé hver gerandinn er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert