Afturelding fær liðsauka frá Val

Sólveig Larsen í leik með Val gegn Stjörnunni.
Sólveig Larsen í leik með Val gegn Stjörnunni. mbl.is/Óttar Geirsson

Afturelding, sem er nýliði í Bestu deild kvenna í fótbolta, hefur fengið Sólveigu J. Larsen lánaða  frá Val.

Sólveig, sem er 21 árs kantmaður, hefur leikið tvo af fyrstu þremur leikjum Vals í deildinni í ár en Valsliðið er komið með þrjá erlenda leikmenn á síðustu dögum. Sólveig á að baki 62 úrvalsdeildarleiki með Val, Fylki, Breiðabliki og  HK/Víkingi og ætti að vera nýliðunum góður liðsauki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert