Faxaflóahafnir búa sig undir hið versta

Skemmtiferðaskipið Viking Saturn var fært til að standa í skjóli …
Skemmtiferðaskipið Viking Saturn var fært til að standa í skjóli af byggingum mbl.is/Hákon

Faxaflóahafnir hafa gripið til aðgerða til að verja skip og mannvirki fyrir óveðrinu sem gengur yfir í dag. Samkvæmt Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra hefur norska skemmtiferðaskipið Viking Saturn verið fært um eina legu til að vera í betra vari þegar veðrið brestur á. Búast menn við að hamagangurinn verði hvað mestur um klukkan 17 í dag.

Sömuleiðis hafa gámar og loðnunót verið sett umhverfis komutjöld á hafnarbakkanum til að verja þau fyrir óveðrinu. Farþegar mega eftir sem áður fara um borð í skipið en töf gæti þó orðið á því. Flestir nýir farþegar eiga að koma með flugi í dag og búist er við röskun og seinkun á flugi sem hefur áhrif á komu þeirra.  

Gunnar sagði viðbúnaðinn nú taka mið af óveðrinu sem gekk yfir landið síðla í september á síðasta ári, sem var eitt hið versta nokkurn tímann í septembermánuði og varð þá töluvert tjón.

Komutjöld á hafnarbakkanum eru varin gámum og loðnunótum
Komutjöld á hafnarbakkanum eru varin gámum og loðnunótum mbl.is/Hákon
Farþegar streyma um borð þrátt fyrir óveðursspá
Farþegar streyma um borð þrátt fyrir óveðursspá mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert