Sólin gæti sest á forsætisráðherratíð Solberg Kjartan Kjartansson skrifar 13. september 2021 15:25 Erna Solberg greiddi atkvæði í Björgvin, heimabæ sínum í dag. Hún hefur verið forsætisráðherra í átta ár. Vísir/EPA Skoðanakannanir benda til þess að dagar Ernu Solberg sem forsætisráðherra Noregs gætu verið taldir. Norðmenn gengu að kjörborðinu í dag en loftslagsbreytingar og ójöfnuður í samfélaginu hafa verið efst á baugi í kosningabaráttunni.
Solberg og Íhaldsflokkur hennar hefur stýrt ríkisstjórnum í Noregi undanfarin átta ár. Nú benda skoðakannanir til þess að stjórnarandstaðan hafi sigur í þingkosningunum sem fara fram í dag. Búist er við fyrstu tölum klukkan 19:00 að íslenskum tíma. Talið er að endanleg úrslit gætu legið fyrir óvenjusnemma í ár þar sem metaðsókn var í utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Verkamannaflokkur Jonasar Gahr Støre stefnir í að verða stærsti flokkurinn eftir kosningar en hann þyrfti að mynda ríkisstjórn með að minnsta kosti tveimur öðrum flokkum til að hafa meirihluta á þingi. Gahr Støre vonast til þess að Verkamannaflokkurinn, Miðflokkurinn og Vinstri sósíalistar nái nægum þingstyrk til að mynda stjórn saman. Ekki er víst að honum verði að þeirri ósk sinni og gæti slík stjórn þurft að reiða sig á stuðning Rauða flokksins, flokks róttækra marxista, eða Græningja sem vilja hætta allri olíuframleiðslu fyrir árið 2035. Nú er útlit fyrir að svonefnd rauða blokkin í Noregi nái hundrað þingsætum en bláa blokkin 69 samkvæmt meðaltali skoðanakannana, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Solberg og leiðtogi Verkamannaflokksins hafa átt í Støre-keppni í kosningabaráttunni.Vísir/EPA Deilt um framtíð olíuiðnaðarins Bæði Gahr Støre og Solberg vilja færa sig hægt frá olíu- og gasvinnslu sem Norðmenn hafa auðgast gífurlega á. Þau vilja gefa olíufyrirtækjum ráðrúm til þess að færa sig hægt og bítandi yfir í endurnýjanlega orkugjafa eins og beislun vindorku undan ströndum Noregs. „Ég tel að það sé röng iðnaðarstefna og loftslagsstefna að binda enda á olíu- og gasiðnaðinn okkar,“ sagði Gahr Støre þegar hann greiddi atkvæði í gær. Minni og róttækari flokkar hafa sótt fast að þeim Solberg í kosningabaráttunni og krefjast harðari aðgerða. Jarðefnaeldsneyti er 40% af öllum útflutningi Norðmanna og um fimm prósent landsmanna starfa við iðnaðinn, að sögn AP-fréttastofunnar. „Okkar krafa er að hætt verði að leita að olíu og gasi og að hætt verði að deila út nýjum leyfum til fyrirtækja,“ segir Lars Haltbrekken, talsmaður Vinstri sósíalista í loftslags- og orkumálum. Því hafnar Tina Brau, olíu- og orkumálaráðherra. Hún telur óhugsandi að Noregur gæti lagt niður stærsta iðnað sinn. Líkt og norski olíuiðnaðurinn ber hún fyrir sig að framleiðslan í Noregi sé umhverfisvænni en annars staðar. Það kæmi því verr út fyrir loftslagið ef olíuframleiðsla færðist frá Noregi. Greining sérfræðinga sem birt var í síðustu viku bendir til þess að menn þurfi að skilja 60% af öllum þekktum olíuforða heimsins eftir í jörðinni ætli þeir sér að eiga raunhæfan möguleika á að halda hnattrænni hlýnun innan við 1,5°C, metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins.
Noregur Loftslagsmál Þingkosningar í Noregi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Sjá meira