Ljósmynd Kaldals af Ástu slegin á 400 þúsund krónur Jakob Bjarnar skrifar 10. janúar 2022 10:32 Frá vinstri: Áslaug Ágústsdóttir gjaldkeri Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Guðríður Sigurðardóttir, formaður stjórnar sjóðsins, Arna Kaldal og Anita Kaldal Ómardóttir en þær frænkur eru barnabarnabörn Jóns Kaldals ljósmyndara. Jón Kaldal Ljósmynd Jóns Kaldals af Ástu Sigurðardóttur skáldkonu hefur verið sleginn hæstbjóðanda á 400.000 krónur.
Uppboðið var til styrktar Menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og rennur upphæðin óskipt í sjóðinn. Kaupandinn kýs að láta nafn síns ekki getið. „Við renndum blint í sjóinn með mögulegt verð en erum mjög ánægð með niðurstöðuna,“ segir Jón Kaldal eitt barnabarna ljósmyndarans Kaldals. Myndin sem var boðin upp er númer 1 af 40 eintaka númeruðu upplagi sem fjölskylda ljósmyndarans gaf út í desember en myndirnar voru gerðar eftir upprunalega sýningareintakinu, eins og ljósmyndarinn gekk frá því á sínum tíma. Vísir greindi frá tildrögum uppboðsins í síðasta mánuði: Ljósmyndin af Ástu er tekin í kringum 1951 til 1952 þegar hún var 21 eða 22 ára gömul, en hún lést aðeins 41 árs að aldri árið 1971 eftitr erfiða ævi. Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar fagnar tíu ára afmæli á þessu ári og hefur að sögn Guðríðar Sigurðardóttar, formanns stjórnar sjóðsins, úthlutað um 400 námsstyrkjum til tekjulágra kvenna og mæðra. Myndin fræga af Ástu.Jón Kaldal „Tilgangur sjóðsins er að styrkja konunar til menntunar svo að þær eigi betri möguleika á góðu framtíðarstarfi. Í vetur hafa 65 konur fengið styrk úr sjóðnum, þar af eru um 40 í háskólanámi. Frá því sjóðurinn var stofnaður höfum við stutt margar konur allt frá því þær hefja nám í háskólabrú til útskriftar úr háskólanámi,“ segir Guðríður. Það voru barnabarnabörn ljósmyndarans, frænkurnar Arna Kaldal og Aníta Kaldal Ómarsdóttir, sem færðu Menntunarsjóðnum styrkinn fyrir hönd fjölskyldunnar og kaupandans hógværa sem tryggði sér myndina og lagði þannig sitt af mörkum til að greiða götu tekjulágra kvenna til menntunar.
Myndlist Hjálparstarf Mest lesið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira