Fölsuðu sjúkraskýrslur barna svo þeim yrði ekki rænt Samúel Karl Ólason skrifar 5. desember 2022 20:00 Starfsfólk barnaspítala í Kherson með munaðarlausum börnum. AP/Bernat Armangue Starfsfólk á barnaspítala í Kherson falsaði sjúkraskýrslur munaðarlausra barna og sögðu þau veikari en þau voru í rauninni. Þetta gerðu þau svo Rússar, sem náðu tökum á borginni snemma í innrás þeirra í Úkraínu, flyttu börnin ekki til Rússlands og rændu þeim.
Þetta byrjaði starfsfólkið að gera mjög fljótt eftir innrásina og sögðu börnin vera of veik til að hægt væri að flytja þau á brott Í samtali við AP fréttaveituna segir yfirlæknir bráðamóttöku sjúkrahússins að starfsfólkið hafi hræðst það að Rússar myndu uppgötva breytingar þeirra. Þau hafi hins vegar ákveðið að leggja allt undir til að koma í veg fyrir að börnin yrðu flutt til Rússlands. Á umræddu sjúkrahúsi voru ellefu börn sem áttu engan að. Starfsfólkið breytti gögnunum um það svo ekki væri hægt að flytja þau af sjúkrahúsinu og á munaðarleysingjahæli eða annað. Um fimmtíu börn voru tekin frá munaðarleysingjahælinu sem sjúkrahúsið hefði sent börnin, og þau flutt til Rússlands. Minnst þúsund börn hafa verið tekin frá skólum og munaðarleysingjahælum í Kherson-héraði frá því innrásin hófst. Ekkert er vitað um hvar þau eru niðurkomin. Rússar hafa frá upphafi innrásarinnar verið sakaðir um að flytja fjölmörg börn frá Úkraínu til Rússlands og ættleiða þau þar. Þetta hefur jafnvel verið gert við börn sem eru ekki munaðarlaus. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki. Hvort sem börn eru munaðarlaus eða ekki, þá er það að ala börn upp í annarri menningu mögulegt ummerki þjóðernishreinsana. Þess að verið sé að reyna að þurrka út menningu og einkenni óvinaþjóðar. Jafnvel þó foreldrar þeirra séu látnir þá eiga börn að vera áfram í eigin landi, samkvæmt sérfræðingum. AP segir einnig frá því að í þorpinu Stepanivka, skammt frá Kherson, hafi umsjónarmaður nokkurs konar meðferðarheimilis fyrir ungmenni falsað gögn 52 ungmenna sem voru munaðarlaus eða í viðkvæmri stöðu. Meðal annars sendi hann börn til starfsmanna sinna og faldi þau, svo þau enduðu ekki í höndum rússneskra hermanna. Fregnir hafa borist af því að Rússar hafi verið að flytja um tíu þúsund börn frá hernumdum svæðum Úkraínu til Rússlands, undir því yfirskini að þau þyrftu læknisaðstoð sem ekki væri aðgengileg í Úkraínu. Sjá einnig: Segja Rússa ætla að ræna rúmlega tíu þúsund börnum Yfirvöld í Úkraínu segja að minnst þrettán þúsund börn hafi verið flutt til Rússlands.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Ofbeldi gegn börnum Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira