Einkunnir Íslands: Frábær fyrirliðaframmistaða hjá Söru og margar góðar Íþróttadeild skrifar 22. september 2020 20:16 Sara Björk Gunnarsdóttir hélt góðan liðsfund inni á vellinum í fyrri hálfleik. vísir/vilhelm
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð á Laugardalsvelli í F-riðli undankeppni EM 2022 í kvöld. Anna Anvegård kom Svíum í 1-0 á 33. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði undir lok fyrri hálfleiks en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Íslenska liðið lék virkilega vel í seinni hálfleik og jafnaði verðskuldað á 60. mínútu. Elín Metta Jensen skoraði þá eftir langt innkast Sveindísar Jane Jónsdóttur. Elín Metta var nálægt því að tryggja íslenska liðinu sigur á 78. mínútu en skaut í slá. Sara spilaði frábærlega á miðju íslenska liðsins í sínum 133. landsleik. Hún jafnaði leikjamet Katrínar Jónsdóttur með landsliðinu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir, Sveindís og Elín Metta áttu einnig skínandi góðan leik. Byrjunarliðið Sandra Sigurðardóttir, markvörður 7Hafði meira að gera en í öllum hinum leikjunum í undankeppninni til samans. Átti fínan leik og varði frábærlega frá Anvegård í seinni hálfleik. Fékk á sig mark á nærstöngina en skotið var gott. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, hægri bakvörður 6Átti ágætis spretti fram völlinn en lenti stundum í vandræðum þegar Svíar tvöfölduðu á hana. Eins og nánast allar í íslenska liðinu lék Gunnhildur betur í seinni hálfleik en þeim fyrri. Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður 8Frábær frammistaða hjá Glódísi. Alltaf hægt að treysta á góða frammistöðu hjá henni með landsliðinu. Sýnikennsla í leiklestri og með frábæra sendingagetu. Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður 7Stóð illa á Anvegård í marki Svía. Spilaði mun betur í seinni hálfleik en þeim fyrri. Hallbera Gísladóttir, vinstri bakvörður 6Hefði mátt setja meiri og betri pressu á Sofie Jakobsson í aðdraganda fyrsta marksins og í nokkrum öðrum tilvikum. Var fín með boltann og hornspyrnur hennar sköpuðu mikla hættu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, hægri kantmaður 7Hættulegasti leikmaður Íslands í fyrri hálfleik. Átti nokkra góða spretti og sýndi að hún er klár í að spila á stærsta sviðinu. Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður 9 - maður leiksins Góð í fyrri hálfleik, frábær í þeim seinni. Alvöru fyrirliðaframmistaða í tímamótaleiknum. Skoraði undir lok fyrri hálfleiks en markið var dæmt af. Færði sig framar í seinni hálfleik og dreif íslenska liðið áfram. Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður 7Komst ekki í takt við leikinn í fyrri hálfleik og var aðallega í eltingarleik. Vann sig virkilega vel inn í leikinn í seinni hálfleik og varð betri með hverri mínútunni. Virtist geta spilað í hálftíma í viðbót. Dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður 7Líkt og Alexandra sást Dagný ekki mikið í fyrri hálfleik. Lék betur í þeim seinni. Gríðarlega öflug í loftinu og í návígum. Sveindís Jane Jónsdóttir, vinstri kantmaður 8Þvílíkur gimsteinn. Lagði upp jöfnunarmarkið með einu af sínum fjölmörgu löngu innköstum. Gríðarlega dugleg og átti góða spretti. Meira áberandi í seinni hálfleik en þeim fyrri. Er komin til að vera í landsliðinu. Elín Metta Jensen, framherji 8Hélt áfram þeim góða sið að skora í öllum leikjum í undankeppninni. Var vel vakandi og stakk sér fram fyrir markvörð Svía og skallaði boltann í netið. Vann vel og reyndi alltaf að búa eitthvað til. Varamenn Hlín Eiríksdóttir kom inn á fyrir Karólínu á 82. mínútu Hættuleg á hægri kantinum. Spilaði of lítið til að fá einkunn. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom inn á fyrir Elínu Mettu á 86. mínútuSpilaði of lítið til að fá einkunn.
EM 2021 í Englandi Mest lesið „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Stendur með Salah og skilur pirring hans Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn