Stjarnan svarar fyrir sig: Sigur fyrir handboltann Sindri Sverrisson skrifar 15. apríl 2021 14:49 Stjörnukonur fá nýtt tækifæri til að leggja KA/Þór að velli. vísir/hulda Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu og segir dóm áfrýjunardómstóls HSÍ, um að leikur liðsins við KA/Þór skuli endurtekinn, vera sigur fyrir handboltaíþróttina. Stjarnan kærði úrslit leiksins við KA/Þór í Olís-deild kvenna í febrúar. Dómarar leiksins skráðu úrslitin sem 27-26 sigur KA/Þórs en mistök höfðu orðið á ritaraborði þar sem „draugamarki“ var bætt við hjá KA/Þór í fyrri hálfleik. Hvort lið skoraði 26 mörk í leiknum. „Það sem gerist á vellinum skal ráða til um úrslit leikja,“ segir í yfirlýsingu Stjörnumanna. Þeir eru á allt annarri skoðun en forráðamenn KA/Þórs um hvort dómur áfrýjunardómstólsins sé handboltanum til framdráttar, en í yfirlýsingu Akureyringa í dag segir að málið sé handboltanum ekki til heilla og „aðför að landsbyggðinni“. Framkvæmd leiksins var í höndum Stjörnunnar, sem heimaliðs, og segir í yfirlýsingu Stjörnunnar að gripið verði til aðgerða til að vinna gegn mistökum eins og þeim sem urðu á ritaraborði í umræddum leik. „Við berum virðingu fyrir rökum varnaraðila í þessu máli en erum hins vegar algjörlega sannfærð um að þegar horft er framhjá skammtímahagsmunum þessara tveggja liða sem tókust á um þetta mál þá hafi handboltinn sigrað í þessu máli,” segir í yfirlýsingunni en hana má lesa í heild hér að neðan.
Stjarnan kærði úrslit leiksins við KA/Þór í Olís-deild kvenna í febrúar. Dómarar leiksins skráðu úrslitin sem 27-26 sigur KA/Þórs en mistök höfðu orðið á ritaraborði þar sem „draugamarki“ var bætt við hjá KA/Þór í fyrri hálfleik. Hvort lið skoraði 26 mörk í leiknum. „Það sem gerist á vellinum skal ráða til um úrslit leikja,“ segir í yfirlýsingu Stjörnumanna. Þeir eru á allt annarri skoðun en forráðamenn KA/Þórs um hvort dómur áfrýjunardómstólsins sé handboltanum til framdráttar, en í yfirlýsingu Akureyringa í dag segir að málið sé handboltanum ekki til heilla og „aðför að landsbyggðinni“. Framkvæmd leiksins var í höndum Stjörnunnar, sem heimaliðs, og segir í yfirlýsingu Stjörnunnar að gripið verði til aðgerða til að vinna gegn mistökum eins og þeim sem urðu á ritaraborði í umræddum leik. „Við berum virðingu fyrir rökum varnaraðila í þessu máli en erum hins vegar algjörlega sannfærð um að þegar horft er framhjá skammtímahagsmunum þessara tveggja liða sem tókust á um þetta mál þá hafi handboltinn sigrað í þessu máli,” segir í yfirlýsingunni en hana má lesa í heild hér að neðan. Dómur er fallinn – Leikurinn verður leikinn aftur. Við í stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar teljum dóm áfrýjunardómstóls HSÍ í máli 1/2021 um að leikur Stjörnunnar KA/Þórs skuli leikinn aftur vera sigur fyrir handboltann sem íþrótt. Það sem gerist á vellinum skal ráða til um úrslit leikja frekar en formsatriði við ritun skýrslu. Það er hins vegar alveg ljóst að forðast eigi atvik sem þessi með öllum tiltækum ráðum og er áminning til allra liða á landinu. Atvik sem þetta hafa komið fyrir áður og við þurfum öll að sameinast um það að öllum ráðum sé beitt til forðast að þau endurtaki sig. Handknattleiksdeild Stjörnunnar tekur þetta mál mjög alvarlega og hefur gripið til aðgerða til að vinna gegn mistökum sem þessum. Vinnubrögð á ritaraborði hafa verið skilgreind mun betur og því komið í ferli að eftirlit með lykiltölum og samanburður á milli ritaraborðs og HBstats sé í föstum skorðum. Uppsetning verður með þeim hætti í framtíðinni að unnt verði að bregðast við strax ef upp kemur misræmi í skráningum. Við berum virðingu fyrir rökum varnaraðila í þessu máli en erum hins vegar algjörlega sannfærð um að þegar horft er framhjá skammtímahagsmunum þessara tveggja liða sem tókust á um þetta mál þá hafi handboltinn sigrað í þessu máli. Það eru hörkuleikir framunda í öllum deildum og mikið fagnaðarefni að handboltinn sé farinn af stað að nýju með tilslökunum yfirvalda. Megi besta liðið sigra, skíni Stjarnan.
Dómur er fallinn – Leikurinn verður leikinn aftur. Við í stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar teljum dóm áfrýjunardómstóls HSÍ í máli 1/2021 um að leikur Stjörnunnar KA/Þórs skuli leikinn aftur vera sigur fyrir handboltann sem íþrótt. Það sem gerist á vellinum skal ráða til um úrslit leikja frekar en formsatriði við ritun skýrslu. Það er hins vegar alveg ljóst að forðast eigi atvik sem þessi með öllum tiltækum ráðum og er áminning til allra liða á landinu. Atvik sem þetta hafa komið fyrir áður og við þurfum öll að sameinast um það að öllum ráðum sé beitt til forðast að þau endurtaki sig. Handknattleiksdeild Stjörnunnar tekur þetta mál mjög alvarlega og hefur gripið til aðgerða til að vinna gegn mistökum sem þessum. Vinnubrögð á ritaraborði hafa verið skilgreind mun betur og því komið í ferli að eftirlit með lykiltölum og samanburður á milli ritaraborðs og HBstats sé í föstum skorðum. Uppsetning verður með þeim hætti í framtíðinni að unnt verði að bregðast við strax ef upp kemur misræmi í skráningum. Við berum virðingu fyrir rökum varnaraðila í þessu máli en erum hins vegar algjörlega sannfærð um að þegar horft er framhjá skammtímahagsmunum þessara tveggja liða sem tókust á um þetta mál þá hafi handboltinn sigrað í þessu máli. Það eru hörkuleikir framunda í öllum deildum og mikið fagnaðarefni að handboltinn sé farinn af stað að nýju með tilslökunum yfirvalda. Megi besta liðið sigra, skíni Stjarnan.
Olís-deild kvenna Stjarnan KA Þór Akureyri Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira