Leggur til breytingar á sóttkví í dag og telur hugmyndir Kára ágætar Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 24. janúar 2022 12:11 Þórólfur segir hugmyndir Kára um að afnema einangrun alls ekki svo vitlausar en vill þó fara hægt í sakirnar frekar en að taka of stórt skref og þurfa að bakka með það síðar. vísir/vilhelm Sóttvarnalæknir hyggst leggja til tilslakanir á reglum um sóttkví í vikunni og afléttingar á samkomutakmörkunum í þeirri næstu. Hann segir hugmynd Kára Stefánssonar um að afnema sóttkví og einangrun ekki svo vitlausa en telur þó skynsamlegra að gera það í skrefum. „
Við höfum allar forsendur til að slaka á sóttvarnatakmörkunum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Nú sé aðeins spurning um hversu mikið og hratt sé skynsamlegt að gera það. „Það sem að er í vinnslu núna með ráðuneytinu og ráðherranum er að einfalda sóttkvíarmálin og einfalda sýnatökurnar. Og ég held að það sé skynsamlegt að byrja á því,“ segir Þórólfur. Hann mun skila minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag með tillögum að nýjum reglum um sóttkví. Hann leggur ekki til að afnema sóttkví alveg en vill að fleiri verði undanþegnir henni. Kári vill aflétta einangrun Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill ganga enn lengra og afnema alveg sóttkví og einangrun í landinu. „Þetta er alltaf spurning um að vega og meta. Erum við að fá meira fyrir þetta en við glötum? Og eins og stendur þá held ég að við séum að fá minna fyrir sóttkví og einangrun heldur en við glötum þannig ég er að segja að við ættum að prófa að sleppa þessu og sjá hvernig fer,“ segir Kári. Ómíkron afbrigðið hafi gjörbreytt öllu. Kári vill ganga lengra en Þórólfur eins og svo oft áður.vísir „Ég held að þessi pest sé komin á þann stað að við eigum að hætta að láta hana hefta okkur eins og hún hefur gert hingað til,“ segir Kári. Þórólfur segir þetta alls ekki svo vitlausa hugmynd. „Þetta hljómar mjög vel en ég er ekki viss um að það gangi svo vel að ætla að byrja á einhverju og fara svo að bakka. Það hefur ekki gefist mjög vel að þurfa að fara að herða aftur. Þannig að ég held að það sé skynsamlegra að fara hægt í sakirnar frekar en að fara of hratt og þurfa svo að stíga eitt skref til baka. Það væri dálítið snúið og erfitt að gera það," segir Þórólfur. „En þessi hugmynd er bara ágæt,“ bætir hann við. Byrjum á sóttkví en bíðum með samkomutakmarkanir Hann segir ljóst að nú verði uppi skiptar skoðanir um einmitt þetta, hversu hratt eigi að ráðast í afléttingar. Hann vinnur nú að tillögum að afléttingaráætlun á samkomutakmörkunum fyrir heilbrigðisráðuneytið sem hann vonast til að verði til í lok vikunnar. Hann telur skynsamlegast að byrja á að breyta reglum um sóttkví áður en ráðist er í almennar afléttingar og það má skilja það á orðum hans að hann vilji helst að þær 10 manna samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi verði það áfram þar til 2. febrúar þegar þær renna út. „Ég held að það sé skynsamlegra að gera það [byrja á að létta á sóttkví] því að það er bara mjög takmarkandi fyrir atvinnulífið í landinu og mörg fyrirtæki þannig ég held að það sé bara mjög brýnt að reyna aðeins að létta á því,“ segir Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Fleiri fréttir Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Sjá meira