Liverpool gæti verið án Salah og Mane í átta leikjum í byrjun næsta árs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2021 12:32 Mohamed Salah og Sadio Mane ræða málin í miðjum leik Liverpool og Chelsea á þessu tímabili. Getty/Simon Stacpoole Mohamed Salah og Sadio Mane hafa verið í stuði að undanförnu og algjörir lykilmenn í sóknarleik liðsins. Það eru því margir stuðningsmenn sem kvíða fyrir næsta janúar þegar þeir verða líka uppteknir annars staðar.
Afríkukeppnin í fótbolta var færð aftur inn á tímabilið og það þýðir að afrísku landsliðin geta kallað til síns leikmenn frá evrópsku félögunum. Mohamed Salah spilar með Egyptum og Sadio Mane með Senegal. Liverpool to hold talks in attempt to reduce Africa Cup of Nations disruptionhttps://t.co/D90gBtZG7Y pic.twitter.com/24njbJtgyh— Mirror Football (@MirrorFootball) October 21, 2021 Þetta eru slæmar fréttir fyrir mörg félög en þetta verður varla verra en fyrir Liverpool ekki síst þar sem Naby Keita gæti líka verið á leiðinni á mótið sem fer fram í Kamerún. Liverpool er að reyna að vinna í því að halda þessum leikmönnum sínum eins lengi og mögulegt er en til þess þarf velvilja frá knattspyrnusamböndunum. Samkvæmt reglun FIFA þá hafa afrísku landsliðið rétt á því að fá leikmenn 27. desember og Afríkukeppnin klárast síðan ekki fyrr en í byrjun febrúarmánaðar. Verði leikmennirnir frá í allan þennan tíma þá gætu þeir misst af átta leikjum hjá Liverpool sem er svakalegur fjöldi. Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp er sagður ætla að reyna að komast að samkomulagi við knattspyrnusambönd Salah, Mane og Keita í næsta landsliðsglugga með það markmið að fá að halda leikmönnum sínum fram yfir leik á móti Chelsea 2. janúar. Úrslitaleikur Afríkukeppninnar á að fara fram 6. febrúar en það er ekkert víst að landslið Liverpool leikmannanna fari alla leið. Það er samt lykilatriði fyrir Klopp að halda sínum mönnum fram yfir mikilvæga leiki á móti Leicester og Chelsea. Klopp hefur sagt að hann sé hrifinn af Afríkukeppninni en það hafi verið stórslys fyrir Liverpool þegar keppnin var færð til baka inn á tímabilið.
Enski boltinn Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Gamlar hetjur taka fram skóna í bikarnum í dag Íslenski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Palace menn fóru mjög illa með West Ham Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti Sjá meira