Skilinn eftir af móðurinni með makríldós, hrökkbrauðssneið og skál af flögum Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2020 11:53 Íbúðina er að finna í Haninge, suður af Stokkhólmi. EPA Sænski maðurinn, sem talinn er að hafi verið haldið í einangrun af móður sinni í 28 ár í íbúð suður af Stokkhólmi, var skilinn eftir í íbúðinni með dós af makríl, hrökkbrauði og skál af kartöfluflögum.
Þetta kemur fram í frétt Aftonbladet í morgun. Þar segir að ættingi mannsins hafi komið að manninum þar sem hann lá vannærður á gólfinu í íbúðinni sem full var af sorpi og úrgangi. Móðir hans hafi verið lögð inn á sjúkrahús fyrir nokkrum vikum og skilið soninn eftir. Ættinginn, kona, sem kom að manninum hafði ekki séð hann í langan tíma og ákvað að kanna ástandið á honum þegar hún frétti að móðir hans dvaldi á sjúkrahúsi. Konan segist hafa komið að ólæstri íbúðinni og að algert myrkur hafi verið þar. Eina birtan hafi verið úr gömlu sjónvarpi sem kveikt var á. Hún hafi þá séð manninn þar sem hann lá á gólfinu, með mikil sár á líkamanum, tannlaus og með litla talgetu. „Þetta var eins og að ganga inn í hryllingsmynd,“ sagði konan í samtali við Expressen. Hún segir manninn þó hafa kannast við sig og hvíslað nafn hennar þegar hann kom auga á hana. Í haldi lögreglu Sænskir fjölmiðlar segja móðurina hafa skilið manninn eftir með eina skál af kartöfluflögum, hrökkbrauðssneið með osti og svo dós af makríl. Konan var lögð inn á sjúkrahús fyrir nokkrum vikum síðan. Móðir mannsins er á áttræðisaldri og er nú í haldi lögreglu vegna gruns um frelsissviptingu og líkamsmeiðingar. Unnið að kortlagningu á lífi mannsins Emma Olsson, saksóknari í málinu, segir að nú verði unnið að kortlagningu á lífi mannsins. Hún segir að maðurinn hafi gengist undir aðgerð á sjúkrahúsi en að hún hafi ekki nánari upplýsingar um líðan hans. Lögregla hyggst þó gera tilraun til að yfirheyra hann í dag. Sænskir fjölmiðlar segja að manninum hafi verið haldið í íbúðinni af móður sinni síðan hann var tólf ára gamall eða í 28 ár. Uppfært 2.12.2020: Konan er ekki lengur grunuð um saknæmt athæfi. Ekkert þykir benda til þess að manninum hafi verið haldið föngnum í íbúðinni. Sjá nánar hér.
Svíþjóð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira