Barrett tilnefnd til Hæstaréttar Bandaríkjanna Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. september 2020 21:09 Trump og Barrett við athöfnina í Hvíta húsinu rétt eftir að Trump tilkynnti að hann tilnefndi Barrett til Hæstaréttar. Skjáskot
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti rétt í þessu tilnefningu sína til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hefur hann tilnefnd Amy Coney Barrett, en því hefur verið spáð undanfarnar daga að Barrett yrði fyrir valinu. Þetta er þriðja tilnefning Trumps til Hæstaréttar og verði Barrett kjörin í dómarasæti af öldungadeild Bandaríkjaþings verða íhaldssamir dómarar sex á móti þremur frjálslyndum dómurum. Trump tilkynnti tilnefningu sína nú rétt eftir klukkan níu við athöfn í Hvíta húsinu. Íhaldssamir aðgerðasinnar hafa fagnað tilnefningunni frá því að fréttir af henni bárust í gærkvöldi en frjálslyndir hafa lýst yfir andstöðu sinni. Barrett var viðstödd athöfninni ásamt eiginmanni og sjö börnum. Hún og Donald Trump gengu inn á sviðið, sem sett var upp fyrir framan Hvíta húsið, við mikið lófatak viðstaddra. Hann sagðist mjög stoltur af þessu augnabliki áður en hann kynnti Barrett við mikið lófatak. Segja hræsni hjá McConnell að kjósa um tilnefningu Trumps Nú hefst kapphlaup öldungadeildarinnar, þar sem Repúblikanar eru í meirihluta, um að kjósa Barrett í embætti en aðeins rúmar fimm vikur eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum. Mitch McConnell, forseti öldungadeildarinnar og leiðtogi Repúblikananna, hefur heitið því að verkið takist fyrir kosningar. Þá hefur Lindsey Graham, formaður dómsmálanefndar öldungadeildarinnar, gefið það til kynna að hann telji að Barrett verði kjörin dómari fyrir 3. nóvember, daginn sem forsetakosningar fara fram. Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings.AP/Jacquelyn Martin Margir frjálslyndra hafa lýst yfir óánægju með það að McConnell skuli ætla að láta öldungadeildina taka tilnefninguna fyrir og hafa bent á að þegar Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, tilnefndi Merrick Garland til Hæstaréttar hafi McConnell neitað að taka tilnefninguna fyrir í öldungadeild. Var röksemdafærsla McConnells sú á sínum tíma að of stutt væri í kosningar og hann myndi ekki taka fyrir tilnefningu til Hæstaréttar í öldungadeild á kosningaári. Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hefur lýst því yfir að honum þyki að sá sem verði kjörinn forseti í nóvember eigi að tilnefna nýjan dómara. Fimmti kvenkynsdómari Hæstaréttar Barrett er 48 gömul og er svo að segja nýgræðingur á dómarabekk. Hún var tilnefnd af Trump til áfrýjunardómstóls 7. svæðis árið 2017 og hefur starfað þar sem dómari síðan. Hún var nálægt því að vera útnefnd til Hæstaréttar árið 2018 þegar Trump skipaði Brett Kavanaugh til að taka sæti Anthony Kennedy sem settist í helgan stein. Ruth Bader Ginsburg lést 18. september síðastliðinn og hafði hún lýst því yfir að hún vildi að nýr forseti, sem kjörinn yrði 3. nóvember næstkomandi, tilnefndi eftirmann hennar. Getty/WP Verði Barrett kjörin til Hæstaréttar, þar sem hún tekur sæti Ruth Bader Ginsburg sem lést föstudaginn 18. september síðastliðinn, verður Barrett fimmta konan til þess að sitja sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna. Aðhyllist „upprunalega“ túlkun á stjórnarskránni Frá því að Barrett tók við dómarasæti við áfrýjunardómstólinn hefur hún reynst íhaldsmönnum vel að því er fram kemur í frétt Reuters. Hún dæmdi með einni af harðlínustefnum Trumps um innflytjendamál og hefur stutt aukin réttindi til að bera skotvopn. Hún hefur einnig dæmt því í vil að háskólanemar sem sakaðir hafa verið um kynferðisbrot geti kært skólann. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt þrjá dómara til Hæstaréttar Bandaríkjanna. AP/Evan Vucci Þá hafa aðgerðahópar um þungunarrof lýst yfir áhyggjum vegna tilnefningar hennar og telja að kjör hennar gæti orðið til þess að dómurinn líti fram hjá dómnum Roe gegn Wade, sem dæmdur var árið 1973 og gefið hefur helsta fordæmið fyrir lögmæti þungunarrofs í Bandaríkjunum. Þá aðhyllist Barrett „upprunalega“ túlkun stjórnarskrárinnar eins og hún og aðrir íhaldssamir lögfræðingar kalla það. Gengur það út á að reyna að ráða í upphaflega merkingu stjórnarskrárinnar, sem var rituð fyrir meira en tveimur öldum. Barrett er ein þeirra sem fylgir þessari hugmyndafræði og dæmi um það er þegar hún skilaði sératkvæði í máli sem varðaði það hvort sakamenn sem hefðu ekki gerst sekir um ofbeldisbrot ættu að vera sviptir rétti til að eiga skotvopn varði hún nær öllu máli sínu í að fara yfir sögu reglna um vopnaeign dæmdra manna á 18. og 19. öld.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Hæstiréttur Bandaríkjanna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira