Fótbolti

Sara Björk segir að úr­slita­leikur bíði í Gautaborg

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Björk Gunnardóttir kom boltanum í mark Svía undir lok fyrri hálfleiks en króatískur dómari leiksins leyfði markinu ekki að standa.
Sara Björk Gunnardóttir kom boltanum í mark Svía undir lok fyrri hálfleiks en króatískur dómari leiksins leyfði markinu ekki að standa. VÍSIR/VILHELM

„Maður er hálf svekktur. Mér fannst við verðskulda þrjú stig og sigur,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði Íslands, í samtali við íþróttadeild eftir 1-1 jafnteflið gegn Svíþjóð í undankeppni EM. 

Svíarnir komust yfir í fyrri hálfleik í kvöld en Elín Metta Jensen jafnaði metin í síðari hálfleik. Ísland virtist þó vera jafna í fyrri hálfleik er Sara skoraði en markið var dæmt af.

„Við skorum mark en ég hef ekki séð brotið. Þau sögðu að þetta hafi ekki verið brot og það er svekkjandi.“

„Mér fannst við ná tökum á seinni hálfleik og hefðum getað sett annað mark. Þetta er einn af okkar bestu leikjum og þetta setur tóninn. Við getum vel unnið þær úti og það verður hörkuleikur.“

En hvað breyttist í hálfleik?

„Mér fannst í fyrri hálfleik að þær lágu á okkur. Við vorum í eltingarleik en löguðum svo pressuna. Í fyrri hálfleik þá lágum við meira til baka en pressuðum í seinni og vorum að komast í góðar stöður.“

„Í seinni héldum við þeim uppi og fengum fullt af færum eftir okkar pressu.“

Næsti leikur Íslands í riðlinum er einnig gegn Svíum, nánar tiltekið 27. október og Sara segir að það sé úrslitaleikur í riðlinum.

„Við erum núna jafnar á toppnum og það verður hreinn úrslitaleikur um fyrsta sætið. Við munum klára hina leikina. Ég er handviss um það.“

Sara Björk jafnaði í kvöld leikjamet Katrínar Jónsdóttur og er stolt af því.

„Það er ekki leiðinlegt. Skemmtilegt afrek og það eru komnir þó nokkuð margir leikir. Ég byrjaði ung og er ekki búin að missa af mörgum leikjum svo þetta tikkar.“

Klippa: Sara Björk eftir leikinn gegn Svíum

Tengdar fréttir

Sveindís: Besta lið sem ég hef spilað á móti

„Eftir hvernig leikurinn spilaðist þá erum við svekktar að hafa náð bara einu stigi,“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, eftir 1-1 jafnteflið gegn Svíþjóð í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×