Talsverð eftirspurn eftir vændi á Íslandi og kallar eftir þyngri refsingum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 26. janúar 2022 20:00 Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. sigurjón ólason Talsverð eftispurn er eftir vændi á Íslandi. Þetta segir talskona Stígamóta sem telur vændiskaup fráfarandi formanns SÁÁ grafalvarleg í ljósi valdaójafnvægis. Hún kallar eftir þyngri refsingum við vændiskaupum.
Vændiskaup Einars Hermannssonar, fráfarandi formanns SÁÁ, hafa vakið hörð viðbrögð en Einar átti frumkvæði að því að kaupa sér aðgang að líkama skjólstæðings samtakanna. Í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar SÁÁ segir að stjórnin fordæmi vændiskaupin og að hún muni ráðast í gagngera skoðun og nauðsynlegar umbætur á starfinu til þess að tryggja öryggi skjólstæðinga. Grafalvarlegt mál Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta segir málið grafalvarlegt. „Fyrir fólk sem vinnur með jaðarsettum hópum og fólki í viðkvæmri stöðu, þau hafa enn ríkari skyldu til þess að uppfylla öll siðferðisviðmið og huga sérstaklega að því í hvaða valdastöðu þau eru gagnvart sínum skjólstæðingum.“ Þær konur sem leiti til Stígamóta með reynslu af vændi séu oft í vímuefnavanda. „Það eru akkúrat þessar konur sem leita þjónustu hjá SÁÁ og við viljum að þær viti að þær séu öruggar þegar þær stíga þar inn í meðferð og eru að reyna að fá lausn á sínum vanda.“ Hátt í fjörutíu manns leita árlega til Stígamóta vegna vændis Steinunn segir talsverða eftirspurn eftir vændi á Íslandi, en á hverju ári leita 30-40 manns til Stígamóta til þess að vinna úr afleiðingum vændis. Hún segir afleiðingarnar svipaðar og sjást hjá þolendum kynferðisofbeldis en þó almennt mun alvarlegri. „Á meðal kvennana okkar sem hafa verið í vændi þar sjáum við miklu hærri tíðni sjálfsvígstilrauna og sjálfsvígshugleiðinga og annarra mjög skaðlegra afleiðinga.“ Vill þyngri refsingar við kaup á vændi Þá séu þolendur vændis oftar en ekki í mjög jaðarsettri stöðu. „Þetta eru konur sem eiga langa og erfiða áfallasögu, glíma við fátækt og jafnvel oft við vímuefnavanda.“ Hún segir mikilvægt að kaup á vændi sé skilgreint sem ofbeldi. Refsiramminn sé lár og fyrningarfresturinn stuttur, eða tvö ár. „Mér finnst þetta ofbeldi mjög alvarlegt og myndi auðvitað vilja sjá bæði hærri refsingar og þar með hærri fyrningarfrest.“
Vændi Kynferðisofbeldi Ólga innan SÁÁ Mál Einars Hermannssonar Tengdar fréttir Fordæma hegðun Einars og boða formannskjör Framkvæmdastjórn SÁÁ fordæmir Einar Hermannsonar vegna vændiskaupa hans sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Nýtt formannskjör fer fram á föstudaginn. 25. janúar 2022 21:38 Segir mann sem misnotaði hana enn starfa innan SÁÁ Fyrrum skjólstæðingur SÁÁ segir að starfsmaður samtakanna hafi misnotað hana þremur árum áður en hann tók á móti henni við komuna í meðferð. Meintur gerandi er enn starfandi á vegum samtakanna. 25. janúar 2022 20:16 Rótin sendir yfirlýsingu vegna SÁÁ: „Brot Einars gegn konunni er nöturleg valdamisnotkun“ Rótin - félag um málefni kvenna, segist harma þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson, fráfarandi formaður félagsins, hafi valdið henni. Brotin séu nöturleg valdamisnotkun stjórnarmannsins. 25. janúar 2022 14:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Fara fram á farbann Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Fleiri fréttir Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Sjá meira
Fordæma hegðun Einars og boða formannskjör Framkvæmdastjórn SÁÁ fordæmir Einar Hermannsonar vegna vændiskaupa hans sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Nýtt formannskjör fer fram á föstudaginn. 25. janúar 2022 21:38
Segir mann sem misnotaði hana enn starfa innan SÁÁ Fyrrum skjólstæðingur SÁÁ segir að starfsmaður samtakanna hafi misnotað hana þremur árum áður en hann tók á móti henni við komuna í meðferð. Meintur gerandi er enn starfandi á vegum samtakanna. 25. janúar 2022 20:16
Rótin sendir yfirlýsingu vegna SÁÁ: „Brot Einars gegn konunni er nöturleg valdamisnotkun“ Rótin - félag um málefni kvenna, segist harma þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson, fráfarandi formaður félagsins, hafi valdið henni. Brotin séu nöturleg valdamisnotkun stjórnarmannsins. 25. janúar 2022 14:32