Nánari svör hafi ekki fengist frá Ríkislögreglustjóra Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Stefán Ó. Jónsson skrifa 10. júlí 2020 18:57 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm
Dómsmálaráðherra hafði frumkvæði að því að fengið yrði lögfræðiálit á kjarabótum fyrrverandi ríkislögreglustjóra til handa yfirmanna í lögreglunni. Hún segir fyrri ummæli sín um að heimild hafi verið fyrir kjarabótunum skýrast af upplýsingunum sem þá lágu fyrir. Núverandi ríkislögreglustjóri reiknar með að málið endi fyrir dómstólum. Ákvörðun Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra, að bjóða 11 yfirmönnum að færa fastar yfirvinnustundir inn í grunnlaun og auk þannig lífeyrisréttindi skorti lagastoð, ef marka má lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir eftirmaður hans lét taka saman í vor. Þar segir jafnframt að engin málefnaleg rök hafi verið ákvörðun Haraldar. Í ljósi þessa sé hægt að vinda ofan af henni, sem núverandi ríkislögreglustjóri hyggst gera og hefur gert umræddum yfirmönnum viðvart. Í skriflegu svari til fréttastofu segir formaður Landssambands lögreglumanna að sambandið hafi þegar mótmælt fyrirhugaðri afturköllun lífeyrisbreytinganna. Formlegra andmæla sé jafnframt að vænta frá lögreglusambandinu innan tveggja vikna því lögmaður þess sé „einfaldlega á allt annarri skoðun en fram kemur í lögfræðiáliti“ ríkislögreglustjóra. Sigríður segist sjálf gera ráð fyrir því að málið endi fyrir dómstólum, enda sé um 300 milljónir króna í húfi. Dómsmálaráðherra óskaði eftir því í apríllok að Sigríður tæki kjarabreytingar forvera hennar til skoðunar, en ráðherrann hafði áður sagt að Haraldur hefði haft fulla heimild til að bæta kjör undirmanna sinna. „Auðvitað er almennt forstöðumönnum heimilt að gera slíka samninga en þeir verða auðvitað að vera innan þeirra stofnanasamninga sem eru í gildi. Það komu athugasemdir frá Kjara- og mannauðssýslu um að það þyrftu að vera þannig breytingar á starfi viðkomandi aðila og fleira svo að þetta væri innan þeirra stofnanasamninga sem væru í gildi,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Ummæli hennar hafi því ekki verið röng, miðað við upplýsingarnar sem lágu fyrir á þeim tíma. „Eftir að við fengum síðan umsögn frá Kjara og -mannauðssýslu Ríkisins þá óskuðum við eftir nánari svörum frá ríkislögreglustjóra sem ekki fengust,“ segir Áslaug. Sigríður Björk hefur sagst ætla að vinda ofan af ákvörðun forvera sína. Styður þú hana í þeirri vegferð? „Ég óskaði eftir því að hún myndi skoða þetta og þetta er í ferli þar og ég hef ekki meira um það að segja í bili,“ segir Áslaug Arna.
Lögreglumál Kjaramál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt. 10. júlí 2020 06:40 Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur. 9. júlí 2020 19:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Erlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Erlent Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Erlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Sjá meira
Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt. 10. júlí 2020 06:40
Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur. 9. júlí 2020 19:33
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent