Sérreglur fyrir ákveðna hópa erfiðar í framkvæmd Kjartan Kjartansson skrifar 7. apríl 2021 19:16 Sundlaugar hafa verið lokaðar frá því að sóttvarnareglur voru hertar 25. mars. Eldri borgarar eru á meðal tryggustu gesta baðstaða á landinu. Vísir/Vilhelm Ekki hefur verið skoðað sérstaklega að slaka á sóttvarnareglum fyrir fólk sem hefur verið bólusett gegn kórónuveirunni, að sögn sóttvarnalæknis. Hann telur að sérreglur fyrir bólusetta eða þá sem hafa fengið Covid-19 erfiðar í framkvæmd og eftirliti.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, lýsti því sem góðri hugmynd að hleypa eldri borgunum í sund nú þegar flestir yfir sjötugu hafi fengið að minnsta kosti fyrri skammt af bóluefni gegn veirunni. Sundstaðir hafa verið lokaðir frá því að sóttvarnaaðgerðir voru hertar í mars. Það gæti þó verið afar erfitt í framkvæmd að slaka á sóttvarnareglum fyrir tiltekinn hóp eins og bólusetta eldri borgara að mati Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis. Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni sagði hann að slíkt hefði verið reynt erlendis og yfirvöld hafi lent í vandræðum þar. „Ég er ekki endilega viss um að á þessu stigi munum við fara út í það. Við höfum reynt að vera með almennar reglur og ekki verið að undanskilja þá sem eru bólusettir eða fengið Covid neitt sérstaklega. Það gæti verið mjög erfitt í framkvæmd og yrði mjög erfitt að hafa eftirlit með því,“ sagði Þórólfur. Þá sagði hann ekki hægt að gefa það út nákvæmlega við hvaða mörk yrði hægt að aflétta hinum eða þessum sóttvarnaaðgerðum. Þegar góðri útbreiðslu bólusetninga væri náð, um 50% þjóðarinnar, ætti að vera hægt að byrja að slaka á en ýmsu væru þó enn ósvarað um faraldurinn sjálfan og bólusetningar, þar á meðal um hvernig mismunandi afbrigði veirunnar hegða sér og hvort bólusettir geti borið smit á milli fólks. Sóttvarnalæknir sér fyrir sér að þróunin verði hæg fram á sumarið en ef bólusetningar ganga vel áfram hilli undir að hægt verði að slaka á takmörkunum. „Við verðum að vera viðbúin alls konar uppákomum í þessu,“ sagði hann. Hægt er að hlusta á viðtalið við sóttvarnalækni í spilaranum hér fyrir neðan.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Sjá meira