Bílstjóri Angjelins segist hafa komið fullkomlega af fjöllum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. september 2021 16:21 Shpetim huldi andlit sitt með grímu, derhúfu og sólgleraugum fyrir þinghaldið í morgun. Vísir/vilhelm Shpetim Qerimi, sem er sakaður um að eiga hlutdeild í morðinu á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar, neitaði sök við skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Shpetim er sagður hafa ekið Angjelin Sterkaj í Rauðgerði kvöldið sem Angjelin skaut Armando til bana.
Shpetim sagði Angjelin hafa greint sér frá erjum á milli sín og Armando og félaga Armando að nafni Goran. Goran var á meðal þeirra sem handteknir voru í málinu en ekki ákærðir. Angjelin hafi sagt Shpetim að sér hefði verið hótað lífláti af þeim. Angjelin hafi beðið Shpetim um ráð, hvað væri best að gera í þessari stöðu. „Angjelin, ertu með sannanir? Annað hvort sættistu við þá eða ferð niður á lögreglustöð og kærir þá. Mín ráð eru að sættast við þá, ekki vera með neitt vesen,“ sagði Shpetim þegar hann var spurður hver hans ráð væru. Kvöldið sem Armando var myrtur bað Angjelin Shpetim að koma með sér í bílferð. Að sögn Shpetims hafi þeir ekið í átt að Rauðagerði, þar sem Shpetim var undir stýri, en Shpetim sagðist ekki hafa vitað í hvaða tilgangi. Hann sagðist ekki einu sinni hafa vitað að förinni hefði verið heitið til Armando. Hann hafi stöðvað bílinn og Angjelin farið út. Shpetim heldur því fram að hann hafi ekki tekið eftir 43 sentímetra langri skammbyssunni sem Angjelin tók með sér og komið svo aftur með í bílinn. Hann hafi heldur ekki haft vitneskju um að Angjelin hefði skotið Armando þegar Angjelin sneri aftur í bílinn. Angjelin hafi einfaldlega sagt honum að aka af stað. Við skýrslutöku í morgun sagðist Angjelin hafa sagt við Shpetim að Armando yrði ekki lengur til vandræða, þegar þeir óku í burtu frá Rauðagerði. „Ég var ekkert að hlusta á það sem hann var að segja. Ég vissi ekki hvað hann var að tala um,“ svaraði Shpetim þegar hann var spurður út í þessi orð Angjelin þegar þeir voru á leið frá Rauðagerði. Hann hafi ekki komist að því fyrr en degi síðar að búið væri að myrða Armando. Shpetim hafi hringt í Angjelin og spurt: Veistu hvað gerðist? Svarið frá Angjelin hafi verið: Já, ég er búinn að drepa hann. Bar Shpetim við áfengisneyslu þegar gengið var á hann hvernig stæði á því að hann hefði ekki tekið eftir neinu þetta kvöld.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Tengdar fréttir Hló og sagðist halda að Angjelin væri undir áhrifum fíkniefna „Armando var vinur minn,“ sagði Murat Selivrada við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Armando var skotinn til bana af Angjelin Sterkaj í Rauðagerði 13. febrúar síðastliðinn. 13. september 2021 15:10 Átti að senda „hæ sexy“ ef annar bíllinn yrði hreyfður Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu var framhaldið eftir hádegi í dag þar sem tekin var skýrsla af Claudiu Sofiu Coehlo Carvalho, unnustu Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum. 13. september 2021 14:08 Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. 13. september 2021 10:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira
Hló og sagðist halda að Angjelin væri undir áhrifum fíkniefna „Armando var vinur minn,“ sagði Murat Selivrada við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Armando var skotinn til bana af Angjelin Sterkaj í Rauðagerði 13. febrúar síðastliðinn. 13. september 2021 15:10
Átti að senda „hæ sexy“ ef annar bíllinn yrði hreyfður Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu var framhaldið eftir hádegi í dag þar sem tekin var skýrsla af Claudiu Sofiu Coehlo Carvalho, unnustu Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum. 13. september 2021 14:08
Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. 13. september 2021 10:34