Kapphlaup um nýja bálstofu í uppsiglingu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. september 2021 19:00 Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir forsvarskona Bálfararfélags Íslands og Trés lífsins hyggst reisa Bálstofu en það gera líka Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma að sögn forstjórans Þórsteins Ragnarssonar. Vísir/Egill Kapphlaup virðist vera í uppsiglingu milli Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma og einkaaðila um byggingu nýrrar bálstofu. Forstjóri kirkjugarðana telur aðeins pláss fyrir eina bálstofu í landinu.
Sífellt fleiri velja að láta brenna sig eftir sinn dag eða um fjórir af hverjum tíu landsmönnum og ennþá fleiri á höfuðborgarsvæðinu eða 55%. Einu líkbrennsluofnarnir í landinu eru í Bálstofunni í Fossvogi en þeir eru tveir og voru byggðir þar árið 1948. Líkkista á leið í líkbrennsluofn í bálstofunni í Fossvogi.Vísir/Egill Þórsteinn Ragnarsson forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma sem sér um bálstofuna segir að starfsleyfi fyrir stofuna hafi verið endurnýjað í sumar. Þá verði mengunarbúnaður ofnanna uppfærður eftir leiðbeiningar frá erlendum sérfræðingum á næstu misserum. Hann segir þó að á næstu árum verði hætt að nota þessa ofna. En til standi að byggja nýja bálstofu á Hallsholti við Gufuneskirkjugarð. „Það er búið að gera kostnaðaráætlun og rekstraráætlun sem verður kynnt nú í haust og við sjáum fram á að ný bálstofa á Hallsholti muni leysa af Bálstofuna í Fossvogi. Á meðan sú nýja er að rísa munum við reka bálstofuna í Fossvogi í fimm til átta ár í viðbót,“ segir Þórsteinn. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir forsvarskona Bálfararfélags Íslands og Trés lífsins hyggst einnig byggja bálstofu og hefur fengið til þess lóð í Rjúpnadal í Garðabæ. „Þetta er sjálfseignarstofnun og er óhagnaðardrifin. Við áætlum að reisa hér í Rjúpnadal 1500 fermetra húsnæði sem hýsir þá fjölnota athafnasal og hugleiðslu og kyrrðarrými. Móttöku fyrir aðstandendur og svo bálstofuna sjálfa sem verður umhverfisvæn. Fyrir utan verður minningargarður þar sem fólk getur sett niður duftker og gróðursett tré í leiðinni. Það getur svo fylgst með trénu dafna til minningar um látinn ástvin,“ segir Sigríður. Telur eina bálstofu nægja fyrir landið Þórsteinn Ragnarsson hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma telur að þessari bálstofu verði ofaukið. „Ein bálstofa er nóg fyrir Ísland. Það segja þeir sem til þekkja,“ segir Þórsteinn. Sigríður segist ekki ætla að láta deigan síga þó fyrirætlanir séu um byggingu annarrar bálstofu. Svæðið þar sem fyrirhugað er að reisa bálstofu í Rjúpnadal í Garðabæ „Við höldum bara okkar striki með bálstofu Trés lífsins í Garðabæ og svo er það bara þeirra sem reka hina bálstofuna að ákveða hvað þau gera,“ segir Sigríður. Hún býst við að fyrsta skóflustungan verði tekin fyrir jól og bálstofan verði risin eftir um tvö ár. Um fjármögnunina segir Sigríður: „Við erum með ósk um stofnkostnaðarstyrk hjá íslenska ríkinu og svo erum við með vilyrði fyrir láni hjá tveimur lífeyrissjóðum. Restin verður svo hópfjármögnuð,“ segir Sigríður bjartsýn að lokum.
Kirkjugarðar Garðabær Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Fleiri fréttir Setur fram grundvallarkröfur Samfylkingarinnar „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Sjá meira