Sport

Mega ekki sýna í­þrótt­am­fólk krjúpa í Tókýó

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lucy Bronze fyrir leik Bretlands og Síle. Einnig má sjá tvo leikmenn Síle krjúpa á myndinni.
Lucy Bronze fyrir leik Bretlands og Síle. Einnig má sjá tvo leikmenn Síle krjúpa á myndinni. Masashi Hara/Getty Images

Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, og skipulagsnefnd Ólympíuleikanna 2020 í Tókýó í Japan gáfu í dag út yfirlýsingu þess efnis að samfélagsmiðlateymi liða, landa og einstkalinga megi ekki sýna íþróttafólk krjúpa fyrir keppni.

Kom ákvörðunin í kjölfar þess að Lucy Bronze [sjá mynd] og stöllur hennar í breska landsliðinu krupu fyrir leik Bretlands og Síle í dag. 

Á myndinni hér að ofan má sjá Bronze krjúpa fyrir leik og þó keppendum verði ekki bannað að krjúpa má ekki sýna það með neinum hætti. 

Knattspyrnuhluti leikanna fór af stað í dag og krupu flestar þjóðir fyrir leiki sína til að sýna samstöðu í baráttunni gegn kynþáttaníði og hatursorðræðu. Steph Houghton, ein af þremur fyrirliðum Bretlands, sagði að liðið hefði tekið einróma ákvörðun um að krjúpa fyrir leik dagsins og sýna samstöðu. 

Houghton sagði einnig að hún hefði verið mjög stolt að sjá lið Síle krjúpa þar sem það hafi sýnt samstöðu íþróttarinnar í heild. Alþjóða Ólympíusambandið og skipuleggjendur leikanna í Tókýó virðast ekki á sama máli. 

Ákvörðun IOC kemur á óvart þar sem sambandið hampar myndinni þar sem Tommy Smith og John Carlos standa með upprétta hendi og krepptan hnefa á ÓL 1968 til að vekja athygli á bágri stöðu svartra í Bandaríkjunum.

Þá ákvað IOC að slaka á Reglu 50 en hún bannaði keppendum að sýna einhver „pólitísk, trúarleg eða menningarleg skilaboð“ á leikunum. Keppendur mega nú mótmæla friðsamlega, svo lengi sem það móðgi ekki aðra keppendur né trufli keppni.

Keppendur mega því krjúpa til að senda ákveðin skilaboð en forráðamenn leikanna ætla ekki að koma þeim skilaboðum áleiðis til heimsbyggðarinnar.

The Guardian greindi frá.


Tengdar fréttir

Skoraði þrennu í sjö marka tapi

Barbra Banda mun seint gleyma leik Sambíu og Hollands á Ólympíuleikunum í knattspyrnu sem fram fór í dag. Hún skoraði öll þrjú mörk Sambíu í 3-10 tapi. Þá skoraði Christine Sinclair sitt 187. landsliðsmark í 300. leiknum sínum fyrir Kanada.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×