Stórstjörnurnar fóru á kostum

LeBron James og Russell Westbrook fagna í nótt.
LeBron James og Russell Westbrook fagna í nótt. AFP

Stjórstjörnunar þrjár í liði Los Angeles Lakers fóru á kostum þegar liðið tók á móti Detroit Pistons í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Lebron James var stigahæstur með 33 stig, Anthony Davis skoraði 24 stig og tók tíu fráköst, þá skoraði Russell Westbrook 25 stig og gaf níu stoðsendingar.

Leiknum lauk með fjögurra stiga sigri Lakers, 110:106, en Lakers-liðið hefur verið heldur óstöðugt það sem af er leiktíðar og er með ellefu sigra og ellefu töp í áttunda sæti vesturdeildarinnar.

Úrslit næturinnar í NBA:

Los Angeles Lakers – Detroit Pistons 110:106
Memphis Grizzlies – Sacramento Kings 128:101
Toronto Raptors – Boston Celtics 97:109
Indiana Pacers – Milwaukee Bucks 100:118
Los Angeles Clippers – Golden State Warriors 90:105

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert