Vörubíll á hliðina á Þrengslavegi

Einhverjar tafir á umferð eru við gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar.
Einhverjar tafir á umferð eru við gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar. Ljósmynd/Vegagerðin

Þrengslavegamót, aðrein frá Þrengslavegi til Reykjavíkur, er lokuð um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fór vörubíll á hliðina og var bílstjórinn fluttur á slysadeild til skoðunar. Ekki er vitað nánar um líðan hans.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert