Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 11:42 Ferðamenn eru sjaldgæf sjón þessi misserin, sem vegur þyngst í tölum Hagstofunnar. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar.
Áætlað er að landsframleiðslan hafi dregist saman um 10,4 prósent að raungildi á þriðja ársfjórðungi 2020, borið saman við sama tímabil í fyrra. Samdráttinn má rekja til utanríkisviðskipta og vegur ferðaþjónustan þar þyngst, en hún dróst saman um 77 prósent. Um er að ræða mesta samdrátt í Evrópu, af þeim löndum sem hafa birt áætlanir sínar um þróun landsframleiðslu. Snorri Jakobsson hagfræðingur segir varasamt að horfa of mikið í tölur einstakra ársfjórðunga. Snorri Jakobsson hagfræðingur.Vísir/Baldur Hrafnkell Jónsson „Það var náttúrulega gríðarlega mikið af ferðamönnum hér í fyrra og svo förum við næstum því í núllið, sem kemur mjög sterkt fram í tölunum. En þetta er allt saman í raun og veru stóra planið sem var lagt upp, það var að reyna að keyra hagkerfið áfram á sem mestum krafti með einkaneyslu og fjárfestingu, hvetja eins mikið til hennar eins og hægt væri,“ segir Snorri. Það muni hins vegar koma að skuldadögum. „En svo á einhverjum tímapunkti þá þurfum við að greiða það til baka, til að koma í veg fyrir fjölda atvinnuleysi og það væri náttúrulega bara skelfilegt eins og seðlabankastjóri hefur bent á, ef byggingariðnaðurinn færi að hrynja líka eða aðrir atvinnuvegir.“ Tölurnar komi ekki á óvart. „Við sjáum skýrt í þessum tölum, þessa stefnu sem stjórnvöld hafa tekið að það er að hvetja sem mest til neyslu og fólk neyti sem mest hérna heima, eyði sem mest og haldi ekki að sér höndum. Þá værum við bara með feitan mínus í vöruskiptunum.“ Ólíklegt sé að breytingar verði á næstu tölum, þó seinni hluti næsta árs verði að vonum bjartari. „Ég held að fjórði ársfjórðungur verði jafn dökkur og svartur eins og annar og þriðji - fyrsti ársfjórðungur verði það kannski líka, en við ættum að sjá betri tölur á öðrum þriðja og fjórða næsta árs,“ segir Snorri.
Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Tölum um neytendamál! Samstarf Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Berjast um bestu tillöguna Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Sjá meira