Hatrið ekki slíkt að menn vilji láta Njarðvík falla Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2021 11:31 Logi Gunnarsson og félagar í Njarðvík gætu þurft aðstoð frá Herði Axel Vilhjálmssyni og félögum í Keflavík í kvöld. Samsett/Vilhelm Keflvíkingar gætu komist í þá stöðu í kvöld að geta sent erkifjendur sína í Njarðvík niður í 1. deild, með því að tapa gegn Hetti á Egilsstöðum. Þeir hafa hins vegar meiri áhuga á því Njarðvík haldi sér uppi og að liðin mætist í úrslitakeppninni. „
Við viljum alls ekki að Njarðvík falli,“ segir Keflvíkingurinn og stórskyttan Magnús Þór Gunnarsson sem Vísir fékk til að varpa ljósi á ríginn á milli félaganna í Reykjanesbæ. Magnús, sem lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum, segir að Keflvíkingar muni ekki halda aftur af sér á Egilsstöðum í kvöld, þrátt fyrir að hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Höttur þarf að vinna Keflavík til að halda sér uppi, og treysta á að Njarðvík tapi gegn Þór Þorlákshöfn. „Það er mikill misskilningur í gangi með þetta. Það er vissulega mikill rígur á milli liðanna og menn vilja að hinir tapi, en það er bara svo asnalegt og lélegt fyrir körfuboltann ef að Njarðvík fellur. Keflvíkingar eru ekki að fara að mæta, eins og heyrst hefur, með eitthvað unglingaflokkslið á Egilsstaði. Keflavík er bara að fara að gíra sig upp í úrslitakeppni, ætlar að taka Hött og Njarðvík myndi þá halda sér uppi. Það er ekki þannig í Keflavík að hatrið sé það mikill að menn vilji láta Njarðvík falla,“ segir Magnús. Þá er eins gott að Þórólfur hleypi mörgum í höllina Það er vel mögulegt að í stað þess að Njarðvík falli þá mæti liðið Keflavík í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. „Ég held að Keflavík myndi frekar vilja rústa Hött og vona að Njarðvík vinni Þór Þorlákshöfn, svo að Keflavík og Njarðvík mætist í 8-liða úrslitum. Það er mikið skemmtilegra heldur en að gera grín að Njarðvík í 1. deild. Það á ekki við,“ segir Magnús sem segir að ef til þess kæmi að Njarðvík félli þá yrði sérstaklega erfitt að horfa upp á vin sinn Loga Gunnarsson bíta í það súra epli. Njarðvíkingar geta ekki andað rólega fyrr en í fyrsta lagi að leik loknum í kvöld: „Þeir eru í 9. sæti og það er hrikalegt fyrir Njarðvíkinga. Þeir þurfa að klára þetta tímabil með sæmd og vinna Þór Þorlákshöfn, og ef að Haukar vinna Þór Akureyri þá fáum við Keflavík gegn Njarðvík í úrslitakeppninni. Þá er eins gott að Þórólfur hleypi helst þúsund manns í höllina þannig að það verði almennilegt stuð hér í Reykjanesbæ.“ Stöð 2 Sport mun sýna frá öllum völlum í lokaumferðinni í sérstakri Körfuboltakvöldmessu í kvöld og hefst útsending kl. 18.45.
Dominos-deild karla Keflavík ÍF UMF Njarðvík Reykjanesbær Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Leik lokið: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik