Ég hef orðið Íslandsmeistari með öllum liðum sem ég hef spilað fyrir Andri Már Eggertsson skrifar 18. júní 2021 22:00 Róbert Aron skorar mark í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Valur varð Íslandsmeistari í 23. sinn í kvöld eftir að hafa unnið Hauka 29-34. Róbert Aron Hostert leikmaður Vals var í skýjunum eftir að hafa unnið sinn fjórða Íslandsmeistaratitil. „
Það er geggjað að verða Íslandsmeistari í fjórða skiptið. Ég hef orðið Íslandsmeistari með öllum liðum sem ég hef spilað með hér heima, það er eins dæmi." „Þetta lið sem ég er í er geggjað, við ætluðum ekki að fara halda neinu forskoti heldur rúlla yfir þá sem við gerðum á endanum," sagði Róbert Aron raðsigurvegari. Róbert Aron gekk í raðir Vals fyrir þremur árum með markmið sem varð að veruleika í kvöld. „Í úrslitakeppni er svo mikilvægt að fá þessi augnablik sem snúa þér í hag, þetta var stál í stál. Það má hrósa spennustiginu hjá okkur öllum sérstaklega hjá ungu leikmönnunum." Tímabilið hófst 12. september hjá Val, Róbert viðurkenndi að þetta tímabil var mjög langt og reyndi mikið á alla leikmenn. „Þetta tímabil er búið að stoppa endalaust, síðan hefur tímabil hjá okkur verið upp og ofan sem kom á daginn að við lærðum af því fyrr í vetur á meðan Haukarnir fengu loksins skell eftir að hafa valtað yfir alla." „Við vorum einfaldlega langbestir í þessari úrslitakeppni svo einfalt er það. Valur er frábært félag og er geggjað að ná að koma með titil í félagið." Róbert Aron endaði á að segja að hann verði í Val á næsta tímabili.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Sjá meira