Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð Samúel Karl Ólason skrifar 10. maí 2021 10:04 Tugir manna eru sagðir hafa verið fluttir á sjúkrahús vegna átakanna. AP/Mahmoud Illean Palestínskir heilbrigðisstarfsmenn segja minnst 278 Palestínumenn hafa særst í átökum við ísraelska lögregluþjóna við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í morgun. Þar af hafi minnst tugir þurft á sjúkrahús til aðhlynningar.
Lögreglan segir minnst tólf lögregluþjóna vera særða, auk almennra borgara. Í einu tilfelli hafi sjö mánaða barn slasast þegar grjóti var kastað í bíl sem barnið var í. Rauði hálfmáninn í Palestínu segir einnig að lögregla hafi komið veg fyrir að læknateymi þeirra næðu á átakastaði í borginni, samkvæmt umfjöllun Times of Israel. Í frétt Times of Israel er haft eftir lögreglunni að þúsundir Palestínumanna hafi komið sér fyrir við moskuna yfir nóttina og safnað saman grjóti, bensínsprengjum og öðrum munum sem hægt var að beita sem vopnum. Lögreglan segir mótmælendur hafa ætlað að beita sér gegn skrúðgöngu vegna svokallaðs Jerúsalemsdags, sem fara átti um svæðið í dag. Því réðst lögreglan til atlögu, samkvæmt frétt BBC, og skutu þeir táragasi og hvellsprengjum að mótmælendum, sem voru á endanum reknir frá svæðinu. | : . , @SuleimanMas1 @nurityohanan pic.twitter.com/pwwbafji39— (@kann_news) May 10, 2021 Al-Aqsa moskan og svæðið sem hún er á, svokölluð Musterishæð, er heilagt fyrir bæði gyðinga og múslima. Áðurnefnd skrúðganga átti að fara um svæðið en hún hefur nú verið færð. Mikil spenna hefur verið í Jerúsalem síðustu daga og hefur ítrekað komið til átaka milli lögreglu og mótmælenda. Lögreglan segir öfgamenn á bakvið ofbeldið og hefur gyðingum verið meinað að sækja moskuna. Spennuna má rekja til þess að Ísraelar ætla sér að reka Palestínumenn frá hverfi í Austur-Jerúsalem, sem landtökumenn hafa sölsað undir sig. Palestínumenn vilja að borgarhlutinn verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis þeirra í framtíðinni en Ísraelar hafa hersetið svæðið frá 1967. Sjá einnig: Fjöldi særður eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Hæstiréttur Ísraels átti að taka fyrir í dag mál nokkurra palestínskra fjölskylda sem hafa verið reknar frá heimilum sínum í hverfinu Sheikh Jarrah. Því var þó frestað vegna átaka og mótmæla og á málflutningurinn að fara fram innan mánaðar, samkvæmt frétt Reuters. Hér má sjá tvö myndbönd AFP fréttaveitunnar sem tekin voru í morgun. VIDEO: Palestinian protesters and Israeli security forces clash, water cannon deployed.Palestinian protesters and Israeli security forces clash in East Jerusalem, as tensions boil over the postponement of a key court hearing on a flashpoint property dispute pic.twitter.com/tiLicx0Vq5— AFP News Agency (@AFP) May 10, 2021
Ísrael Palestína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Erlent Grunaðir um rán í miðbænum Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Fleiri fréttir Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Sjá meira