Vaktin: Bjóða upp verðlaunagripinn til styrktar Úkraínu Kjartan Kjartansson, Samúel Karl Ólason og Árni Sæberg skrifa 15. maí 2022 19:00 Meðlimir Kalush orchestra ásamt verðlaunagripnum sem þeir hyggjast bjóða upp til styrktar Úkraínu. Jens Büttner/Getty Úkraínumenn eru sigurreifir eftir að framlag landsins í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór með sigur af hólmi í gærkvöldi. Volodýmýr Zelenskí, forseti Úkraínu, heitir því að keppnin verði haldin í Maríupol, sem Rússar hafa nú á sínu valdi, einn daginn. Rússar hörfa nú frá Kharkiv, næststærstu borg Úkraínu, eftir að hafa látið sprengjum rigna yfir hana undanfarnar vikur. Harðir bardagar geisa enn í Donbas í austurhluta landsins. Breska varnarmálaráðuneytið telur að Rússar hafi misst allt að þriðjung landshersins sem þeir sendu inn í Úkraínu í febrúar. Ríkisstjóri í Lviv-héraði segir upplýsingar um fallna og særða ekki liggja fyrir eftir að Rússar skutu eldflaug á hernaðarmannvirki þar snemma í morgun. Árásir Rússa þar hafa meðal annars beinst að járnbrautarinnviðum en Lviv er nærri pólsku landamærunum. Þar í gegn hefur stór hluti vopnasendinga frá Atlantshafsbandalaginu farið. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Vestrænir ráðamenn segja innrás Rússa ganga illa og Úkraínumenn segjast hafa stöðvað allar sókniri Rússa í dag. Vinsælir rússneskir bloggarar eru hneykslaðir á vangetu rússneskra herforingja eftir að Úkraínumenn svo gott sem þurrkuðu út heila herdeild í austurhluta Úkraínu fyrr í vikunni. Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, og hópur þingmanna flokksins heimsóttu Kænugarð óvænt í gær. Þar funduðu þeir með Volodýmýr Zelenskí forseta. Nýr forseti Ungverjalands, Katalin Novak, fordæmdi innrás Rússa í Úkraínu þegar hún var sett í embætti í gær. Ríkisstjórn Ungverjalands hefur fram að þessu neitað að senda vopn til nágrannalandsins Úkraínu og er mótfallin fyrirhuguðu innflutningsbanni Evrópusambandsins á rússneska olíu. Novak er bandamaður Viktors Orban, forsætisráðherra. Hann hefur einnig fordæmt stríðið en forðast að gagnrýna Vladímír Pútín Rússlandsforseta persónulega. Á bilinu 500 til 1.000 bílar fluttu óbreytta borgara frá Maríupol, sem er að mestu á valdi Rússa, til Zaporizhzhia í gær. Iryna Vereshtjúk, aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu, segir viðræður standa yfir við Rússa um brottflutning um sextíu alvarlegra særðra hermanna sem hafa haldið til í stálverksmiðju í borginni.
Rússar hörfa nú frá Kharkiv, næststærstu borg Úkraínu, eftir að hafa látið sprengjum rigna yfir hana undanfarnar vikur. Harðir bardagar geisa enn í Donbas í austurhluta landsins. Breska varnarmálaráðuneytið telur að Rússar hafi misst allt að þriðjung landshersins sem þeir sendu inn í Úkraínu í febrúar. Ríkisstjóri í Lviv-héraði segir upplýsingar um fallna og særða ekki liggja fyrir eftir að Rússar skutu eldflaug á hernaðarmannvirki þar snemma í morgun. Árásir Rússa þar hafa meðal annars beinst að járnbrautarinnviðum en Lviv er nærri pólsku landamærunum. Þar í gegn hefur stór hluti vopnasendinga frá Atlantshafsbandalaginu farið. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Vestrænir ráðamenn segja innrás Rússa ganga illa og Úkraínumenn segjast hafa stöðvað allar sókniri Rússa í dag. Vinsælir rússneskir bloggarar eru hneykslaðir á vangetu rússneskra herforingja eftir að Úkraínumenn svo gott sem þurrkuðu út heila herdeild í austurhluta Úkraínu fyrr í vikunni. Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, og hópur þingmanna flokksins heimsóttu Kænugarð óvænt í gær. Þar funduðu þeir með Volodýmýr Zelenskí forseta. Nýr forseti Ungverjalands, Katalin Novak, fordæmdi innrás Rússa í Úkraínu þegar hún var sett í embætti í gær. Ríkisstjórn Ungverjalands hefur fram að þessu neitað að senda vopn til nágrannalandsins Úkraínu og er mótfallin fyrirhuguðu innflutningsbanni Evrópusambandsins á rússneska olíu. Novak er bandamaður Viktors Orban, forsætisráðherra. Hann hefur einnig fordæmt stríðið en forðast að gagnrýna Vladímír Pútín Rússlandsforseta persónulega. Á bilinu 500 til 1.000 bílar fluttu óbreytta borgara frá Maríupol, sem er að mestu á valdi Rússa, til Zaporizhzhia í gær. Iryna Vereshtjúk, aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu, segir viðræður standa yfir við Rússa um brottflutning um sextíu alvarlegra særðra hermanna sem hafa haldið til í stálverksmiðju í borginni.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Sjá meira