„Jákvætt skref fyrir íþróttafólk“

Meistaraflokkar og afreksíþróttafólk geta hafið æfingar í mannvirkjum sveitarfélaganna. Íþróttastarf …
Meistaraflokkar og afreksíþróttafólk geta hafið æfingar í mannvirkjum sveitarfélaganna. Íþróttastarf barna sem eru fædd 2005 og síðar hefst ekki að svo stöddu. Ljósmynd/UMFÍ

Ákveðið var á fundi með öllum sviðsstjórum íþrótta- og tómstundasviða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í dag að meistaraflokkar og afreksíþróttafólk geti hafið æfingar í mannvirkjum á vegum sveitarfélaganna.

Fyrr í dag greindi KSÍ frá því að meistaraflokkar á höfuðborgarsvæðinu mega æfa.  

Hvert sveitarfélag ákveður hvenær starfið getur hafist þar sem undirbúa þarf opnun íþróttahúsa með tilliti til starfsfólks og sóttvarnareglna sérsambanda, að því er segir í tilkynningu frá UMFÍ.

Íþróttastarf barna fædd 2005 og síðar hefst ekki að svo stöddu og verður það metið í næstu viku í samstarfi við ÍSÍ. Tilgangurinn með því að fresta því að hefja íþróttastarf barna er sá að forðast blöndun aðra en nú þegar er til staðar í skólastarfi. Von er á formlegri tilkynningu frá almannavörnum höfuðborgarsvæðisins um málið.

„Þetta er gott. Það er alltaf jákvætt að geta komist af stað. En þetta kemur í raun fyrr en við bjuggumst við,“ segir Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK), í tilkynningunni.

Valdimar Gunnarsson.
Valdimar Gunnarsson. Ljósmynd/UMFÍ

„Þetta er jákvætt skref fyrir íþróttafólk. Þetta er hægt. Við þurfum að fá samstöðu um reglurnar og hvaða hópar mega æfa og fara svo eftir þeim. Það væri skrýtið að einn hópur mætti æfa í líkamsræktarsal en annar hópur mætti ekki æfa á gervigrasvelli,“ segir Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert