Mikil átök en engin merki um eldsumbrot Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 1. mars 2021 08:07 Kristín Jónsdóttir er hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands. Hún telur líklegast að það dragi úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga á næstu dögum. Vísir/Baldur Tæplega 800 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá því á miðnætti samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands.
Sá stærsti varð klukkan 01:31 í nótt og mældist 4,9 að stærð. Hann fannst víða en upptökin voru 2,6 kílómetra suðvestur af Keili. Þá varð annar skjálfti 3,8 að stærð rétt fyrir klukkan hálfátta í morgun. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir að alls hafi um átta til níu skjálftar fundist á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun. „Þannig að það hefur ekki dregið neitt úr þessu,“ segir Kristín í samtali við fréttastofu. Hún segir virknina enn að mestu bundna við Keili og þá rétt sunnan við fjallið en einnig við Trölladyngju þó þar sé virknin mun minni. Þá sé virknin ekki farin að færa sig austur fyrir Kleifarvatn í átt að Brennisteinsfjöllum en vísindamenn hafa varað við að á því svæði gæti orðið enn stærri skjálfti eða allt að 6,5 að stærð. Fordæmi fyrir svona hrinum Aðspurð hvort merki séu um eldsumbrot svarar Kristín neitandi. „Þetta eru auðvitað mikil átök en við höfum ekki ástæðu til að halda á þessum tímapunkti að það sé neitt slíkt í gangi,“ segir hún. Það var á miðvikudaginn í síðustu viku sem fyrsti stjóri skjálftinn í þessari hrinu varð en hann var 5,7 að stærð og er enn sá stærsti hingað til. Fjölmargir stórir skjálftar yfir fjórum að stærð hafa fylgt í kjölfarið. Kristín segir að fordæmi séu fyrir svona hrinum í sögunni. „Við erum með ágætar skráningar á skjálftum á síðustu öld og þá koma hrinur á sirka 25 ára fresti. Svona öflug hrina, við þurfum líklega að leita til haustsins 1973 eða jafnvel aftur til 1933 en það eru svona fordæmi einmitt um mikla skjálftavirkni við Fagradalsfjall,“ segir Kristín. Hún segir erfitt að spá fyrir um framhaldið. „Mér finnst nú líklegast að það fari að draga úr þessu á næstu dögum en ég held við verðum bara að spyrja að leikslokum.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Sjá meira