Frestað á Sauðárkróki og Akureyri

Hattarmenn komast ekki til Skagafjarðar í kvöld.
Hattarmenn komast ekki til Skagafjarðar í kvöld. mbl.is/Eggert Johannesson

Veður og ófærð hafa orðið til þess að tveimur leikjum á Íslandsmótinu í körfuknattleik sem fram áttu að fara á Norðurlandi í dag hefur verið frestað, samkvæmt ráðleggingum frá Vegagerðinni.

Tindastóll og Höttur áttu að mætast í úrvalsdeild karla á Sauðárkróki og Þór átti að taka á móti Hrunamönnum í 1. deild karla á Akureyri. Vegna erfiðleika Hattar og Hrunamanna að komast á leikstaðina hefur leikjunum verið frestað og í tilkynningu frá KKÍ segir að unnið sé að því að finna nýja leiktíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert