BÍ telur lokaða dagskrá Stöðvar 2 „lægsta punkt í samtímasögu íslenskrar fjölmiðlunar“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. janúar 2021 17:45 Kvödfréttatími Stöðvar 2 verður frá og með mánudeginum 18. janúar í lokaðri dagskrá. Vísir „Það verða straumhvörf í íslenskri fjölmiðlasögu þegar fréttir Stöðvar 2 hætta að vera í opinni dagskrá núna í janúar eftir 34 ára nánast samfellda starfsemi. Það eru tímamót þegar fréttir Stöðvar 2, til að mynda af náttúruhamförunum á Seyðisfirði fyrir fáum vikum síðan, verða fyrir áskrifendur eingöngu en ekki fyrir allan almenning þessa lands.“
Svona hefst ályktun Blaðamannafélags Íslands, BÍ, vegna fyrirhugaðra breytinga á kvöldfréttum Stöðvar 2. Tilkynnt var fyrr í vikunni að Sýn hafi ákveðið að frá og með 18. janúar næstkomandi verði kvöldfréttir Stöðvar 2 í lokaðri dagskrá og aðeins aðgengilegar áskrifendum. Blaðamannafélagið segir það þungt áfall fyrir íslenska samfélagsumræðu og áfellisdóm yfir þeim rekstrarskilyrðum sem fyrirtækjum hefur verið búin á markaði. „Þegar ljósvakinn var frelsaður úr viðjum einokunar árið 1985 var það upphafið að mesta blómatíma í sögu íslenskrar fjölmiðlunar og undirstaða framfara í íslensku samfélagi á svo ótal mörgum sviðum. Núna þegar útsendingar frétta Stöðvar 2 læsast öðrum en áskrifendum er það táknrænn lægsti punktur í samtímasögu íslenskrar fjölmiðlunar og segir ömurlega sögu um stöðuna á þessum markaði,“ segir í ályktun BÍ. Fram kemur í ályktuninni að samkeppniseftirlitið hafi ítrekað vakið athygli á óeðlilegum skilyrðum sem löggjafinn hafi ákveðið að búa fyrirtækjum á ljósvakamarkaði og bendir á þá ákvörðun sem gerð var árið 2008 um að gera Ríkisútvarpið að opinberu hlutafélagi. Í ályktun samkeppniseftirlitsins kom meðal annars fram að rekja mætti erfiða stöðu keppinauta RÚV á auglýsingamarkaði „til þeirra ósanngjörnu samkeppnisaðstæðna sem ríkja á umræddum markaði og stafa af lögunum um RÚV og samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækisins á auglýsingamarkaði.“ Það sé einnig „veigamikil ástæða þess að ekki eru fleiri öflugar sjónvarpsstöðvar hér á landi en raun ber vitni.“ Í ályktun BÍ segir einnig að með lokun fréttatíma Stöðvar 2 minnki samkeppni á ljósvakamarkaði en samkeppni á því sviði, sem öðrum, sé aflviki gæða. Það sé út af fyrir sig þrekvirki að fréttir Stöðvar 2 hafi verið í opinni dagskrá í 34 ár í samkeppnisumhverfinu sem stöðinni hefur verið búin. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Fjölmiðlar Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tengdar fréttir Hagur neytenda og auglýsenda að ríkið sé á auglýsingamarkaði að mati VG Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir telur að tryggja þurfi fjármögnun Ríkisútvarpsins ef taka eigi stofnunina af auglýsingamarkaði. 13. janúar 2021 10:14 Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða framvegis fyrir áskrifendur Stöð 2 verður hrein áskriftarstöð frá og með 18. janúar. Frá og með þeim tíma verður kvöldfréttatími Stöðvar 2 aðeins aðgengilegur áskrifendum. Sama gildir um Sportpakkann, Ísland í dag og annað fréttatengt efni sem hefur verið í opinni dagskrá. 11. janúar 2021 11:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Tölum um neytendamál! Samstarf Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Sjá meira
Hagur neytenda og auglýsenda að ríkið sé á auglýsingamarkaði að mati VG Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir telur að tryggja þurfi fjármögnun Ríkisútvarpsins ef taka eigi stofnunina af auglýsingamarkaði. 13. janúar 2021 10:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða framvegis fyrir áskrifendur Stöð 2 verður hrein áskriftarstöð frá og með 18. janúar. Frá og með þeim tíma verður kvöldfréttatími Stöðvar 2 aðeins aðgengilegur áskrifendum. Sama gildir um Sportpakkann, Ísland í dag og annað fréttatengt efni sem hefur verið í opinni dagskrá. 11. janúar 2021 11:25