Eldgos í Grímsvötnum „jóker í stöðunni“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 26. nóvember 2021 12:09 Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Vísir Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið stöðugt undanfarna daga og hefur hraðinn á siginu aukist töluvert. Vatn er nú byrjað að fara út úr Grímsvötnum en hefur ekki enn náð jökul jaðrinum. Prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands segir líklegt að merki um slíkt fari að sjást á mælum á næstu klukkustundum eða sólarhring.
Frá því að íshellan byrjaði að síga í Grímsvötnum síðastliðinn miðvikudag hefur hún sigið um um það bil einn og hálfan metra. Ekkert merki er komið í Gígjukvísl um að vatnið hafi náð þangað en að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, getur það gerst hvenær sem er, mögulega á næstu tveimur sólarhringum. „Þetta er orðin frekar stór á sem er að renna út en það tekur smá tíma áður en þetta nær fram,“ segir Magnús en hann telur mögulegt að það geti gerst á næstu klukkustundum eða sólarhring. „Það að er nú líklegt að það fari að koma fram eitthvað vatn í Skeiðará en þetta gerist ekki dramatískt. Þetta byrjar hægt og vex svo.“ Að sögn Magnúsar er rennsli úr jöklinum stöðugt að aukast og virðist hafa tvöfaldast á síðustu dögum. „Við erum sem sagt í byrjunarfasanum á þessu, þetta er farið af stað, en þetta á eftir að ná jökuljaðri. Það er mikið pláss í jöklinum og vatnið þarf að finna sér leið. Það lyftist líka jökullinn, það sýnir sig í fyrri hlaupum að það lyfti um nokkra metra jafnvel, en það er töluvert vatn sem kemst fyrir í jöklinum áður en það fer að leita út,“ segir Magnús. Miðað við fyrri hlaup úr Grímsvötnum gæti verið að flóðtoppur verði eftir fjóra til sex daga. Mögulegt er að gos verði á svæðinu en það gerðist síðast árið 2011, sex mánuðum eftir hlaup úr Grímsvötnum, og árið 2004. „Það er bara jóker í stöðunni við verðum bara viðbúin því að það geti gerst,“ segir Magnús. „Það er ekkert óalgengt að hlaup létti á kviku hólfinu nægilega mikið þegar það sígur og minnkar fargið á honum, að það bresti kviku hólfið sem er þar undir og það komi gos, þetta er eitthvað sem við þurfum að vera viðbúin að geti gerst.“
Grímsvötn Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Ekki að sjá að hlaupvatn sé komið fram í Gígjukvísl Ekki er að sjá að neitt hlaupvatn hafi komið fram í Gígjukvísl en íshellan í Grímsvötnum hélt áfram að lækka í nótt. 26. nóvember 2021 07:40 Hefur sigið um 34 sentimetra Íshellan í Grímvötnum hefur nú sigið um 34 sentimetra frá því í gærmorgun. Búist er við jökulhlaupi en það er þó enn ekki hafið. Talið er líklegt að hlaupið verði síðar í dag eða á morgun. 25. nóvember 2021 11:55 Reikna með hlaupi úr Grímsvötnum á allra næstu dögum Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum. Dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Fundi vísindaráðs Almannavarna lauk á fimmta tímanum í dag. 24. nóvember 2021 16:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Ekki að sjá að hlaupvatn sé komið fram í Gígjukvísl Ekki er að sjá að neitt hlaupvatn hafi komið fram í Gígjukvísl en íshellan í Grímsvötnum hélt áfram að lækka í nótt. 26. nóvember 2021 07:40
Hefur sigið um 34 sentimetra Íshellan í Grímvötnum hefur nú sigið um 34 sentimetra frá því í gærmorgun. Búist er við jökulhlaupi en það er þó enn ekki hafið. Talið er líklegt að hlaupið verði síðar í dag eða á morgun. 25. nóvember 2021 11:55
Reikna með hlaupi úr Grímsvötnum á allra næstu dögum Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum. Dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Fundi vísindaráðs Almannavarna lauk á fimmta tímanum í dag. 24. nóvember 2021 16:48