Óskar eftir fundi í allsherjar- og menntamálanefnd um rasisma innan lögreglunnar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. október 2020 15:30 Þórhildur Sunna segir að það sé augljóst að ríkisstjórnin hafi ekki verið tilbúin í þinglok. „
Ég mun óska eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd taki þetta mál fyrir á fundi og ræði við fulltrúa lögreglunnar um rasisma innan lögreglunnar og aðferðir til þess að sporna við honum,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, á Alþingi í dag. Í umræðum um störf þingsins ræddi hún um ljósmynd Morgunblaðsins af lögreglukonu sem bar umdeilda fána á búningi sínum. „Ljósmynd Morgunblaðsins af lögreglukonu sem bar merki hvítra þjóðernissinna og táknmynd teiknimynda-andhetjunnar the Punisher, eða refsarans, við skyldustörf hefur vakið verðskuldaða athygli í dag,“ sagði Þórildur Sunna. Hún sagði Punisher merkið ekki aðeins sakleysislega tilvísun í teiknimyndapersónu úr Marvel heiminum. „Heldur táknmynd lögreglunnar Vestanhafs sem refsandi afls, þeirra sem taka lögin og refsingar í eigin hendur og sneiða framhjá réttarkerfinu. Skilaboðin eru að lögreglan hafi það hlutverk að refsa borgurunum fyrir ætluð lögbrot þeirra.“ Hún vísaði til yfirlýsingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að ítrekað hafi verið við allt starfsfólk að lögreglumenn eigi ekki að bera nein merki sem ekki eru viðurkennd á lögreglubúningi. Lögreglan styður ekki með neinum hætti hatursorðræðu eða merki sem ýta undir slíkt. Lögreglumenn eiga ekki að bera nein merki sem ekki eru viðurkennd á lögreglubúningi og hefur það þegar verið ítrekað við allt okkar starfsfólk og verður því fylgt eftir.— LRH (@logreglan) October 21, 2020 „Það eru vissulega jákvæðar fréttir en betur má ef duga skal, sérstaklega í ljósi ummæla lögreglukonunnar sem um ræðir sem sagði í samtali við Vísi að merki sem þessi séu notuð af mörgum lögreglumönnum og að hún teldi ekki að þeir þýddu neitt neikvætt. Hún hafi sjálf borið merkin í áraraðir.“ Þórhildur Sunna sagði ummælin benda til þess að annað hvort skorti mikilvæga fræðslu innan lögreglunnar um rasísk og ofbeldisfull merki, eða að rasismi og ofbeldisfull menning fái að grassera innan lögreglunnar. „Hvoru tveggja er óásættanleg staða.“
Alþingi Lögreglan Kynþáttafordómar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Fleiri fréttir Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Sjá meira