Rakang Thai og Blásteini lokað: Erfið ákvörðun en ákveðinn léttir Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2021 08:00 „Maður er búinn að vera þarna lengi og launalaust. Þetta hefur verið stöðugur barningur. Á sama tíma hef ég verið í annarri vinnu, námi og að sinna öðrum málum,“ segir Guðmundir Ingi Þóroddson. Veitingastaðnum Rakang Thai og sportbarnum Blásteini í Hraunbænum var lokað í síðustu viku. Guðmundur Ingi Þóroddsson, eigandi staðanna, segir undanfarin ár hafa reynst mjög erfið í rekstri vegna Covid-19. Ákvörðunin hafi verið erfið en henni fylgi ákveðinn léttir. „
Þetta er búinn að vera hrikalega erfiður tími undanfarin ár.“ Guðmundur segir staðina hafa verið 620 fermetra að stærð og svo mikil stærð hafi kallað á marga starfsmenn. Það hafi gert reksturinn mjög erfiðan samhliða sóttvarnaraðgerðum. „Þegar það mega bara vera tíu til tuttugu manns þarna inni, þá er þetta ofboðslega erfitt.“ Heyrt af mörgum í erfiðleikum Hann sagðist hafa heyrt af mörgum í þessum geira sem hefðu ekki náð sér á strik vegna Covid-19. Ástandið sé búið að vera hrikalega erfitt og eigi örugglega eftir að vera erfitt áfram. Auk Covid-19 hafi aðföng við veitingarekstur hækkað mjög í verði auk launa. Það séu í raun nokkrar ástæður fyrir því að hann hafi tekið þá ákvörðun að loka en Covid-19 sé sú stærsta. „Ég er stoltur af þeim sem eru að þrauka í þessum bransa.“ Guðmundur segist hafa verið að vonast til þess að hlutirnir myndu lagast en það hefði ekki gerst nægilega vel. Þau hafi aldrei náð kvöldaðsókninni aftur upp samhliða niðurfellingu sóttvarnar- og samkomureglna. „Það var alltaf nóg að gera í hádeginu og það lét þetta fljóta áfram. Kvöldtraffíkin kom þó aldrei aftur,“ segir Guðmundur. Í annarri vinnu og námi Hann segir þetta mjög leiðinlegt en að sama tíma sé þetta ákveðinn léttir. Áhuginn fyrir veitingarekstri hafi farið þverandi. „Maður er búinn að vera þarna lengi og launalaust. Þetta hefur verið stöðugur barningur. Á sama tíma hef ég verið í annarri vinnu, námi og að sinna öðrum málum.“ Guðmundur er formaður Afstöðu félags fanga. Hann hafði rekið staðina í tæp fjögur ár en hann byrjaði að undiribúa reksturinn þegar hann var í afplánun á Sogni. „Þetta var aðallega spurning hvort maður ætti að bíða og vona eftir að ástandið yrði betra, og safna skuldum á meðan, eða bara hætta. Ég var ekki að sjá að þetta væri að fara að lagast.“ Sér ekki fyrir sér að byrja aftur Guðmundur segist enn eiga nöfn staðanna, Rakang Thai og Blásteinn, en hann sé ekkert búinn að ákveða um framhaldið. Hann segist hafa verið með frábært starfsfólk í vinnu frá upphafi og mögulega hægt að opna staðinn aftur í mun smærri mynd en áður. Hins vegar sjái hann það ekki fyrir sér að svo stöddu. „Maður á aldrei að segja aldrei en persónulega finnst mér ólíklegt að ég sé að fara aftur í veitingabransann. Það var erfitt að taka þessa ákvörðun en þegar það var búið var það léttir.“ Guðmundir Ingi segir starfsfólk sitt hafa verið frábært.
Veitingastaðir Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík Tengdar fréttir Býður uppá mat að hætti danskra fanga Góð stemmning hjá Guðmundi Inga á Blásteini. 30. október 2019 09:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira
Býður uppá mat að hætti danskra fanga Góð stemmning hjá Guðmundi Inga á Blásteini. 30. október 2019 09:00