Valkvæðum skurðagerðum frestað Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. október 2020 17:19 Alma Möller er landlæknir. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, það er á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir. Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að forstjóri Landspítalans hefði sendi erindi til landlæknis í gær þar sem hann óskaði eftir því að þetta væri gert. „Það er til að minnka hugsanlegt álag á spítalann sem getur hlotist af aðgerðum, sagði Alma á fundinum í gær. Um neyðarúrræði væri að ræða. Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi:
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, það er á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir. Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að forstjóri Landspítalans hefði sendi erindi til landlæknis í gær þar sem hann óskaði eftir því að þetta væri gert. „Það er til að minnka hugsanlegt álag á spítalann sem getur hlotist af aðgerðum, sagði Alma á fundinum í gær. Um neyðarúrræði væri að ræða. Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi: Á meðan faraldur COVID-19 geisar er brýnt að endurskipuleggja heilbrigðisþjónustu þannig að unnt sé að sinna nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu jafnframt því að sinna sjúklingum með COVID-19. Í ljósi alvarlegrar stöðu sem upp er komin á Landspítalanum er forgangsröðun nú nauðsynleg. Einn liður í þeirri forgangsröðun er að takmarka eins og kostur er mögulegar sjúkrahúsinnlagnir á næstu vikum. Landlæknir hefur því ákveðið, með vísan til 1. mgr. 5. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, að beina þeim fyrirmælum til viðkomandi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna að frá og með þriðjudeginum 27. október til og með 15. nóvember nk. skuli öllum svokölluðum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum frestað, hvort sem þær eru framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila. Þrátt fyrir þetta eru þegar skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins heimilar 27. og 28. október nk. Þetta er gert í ljósi þess að slíkar aðgerðir geta kallað á komur á bráðamóttöku og/eða sjúkrahúsinnlögn sem getur valdið enn frekara álagi á sjúkrahús en nú þegar er. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæma í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, eru leyfðar. Speglanir í greiningaskyni eru leyfðar en með þeim takmörkunum að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir eins og sepataka. Landlæknir beinir þeim fyrirmælum til skurðlækna og annarra lækna sem ákvörðun þessi tekur til, að þeir upplýsi skjólstæðinga sína og geri aðrar viðeigandi ráðstafanir eins fljótt og verða má. Þess skal þó gætt að brýnar skurðaðgerðir eða greiningarrannsóknir sem ekki þola bið umfram átta vikur verði framkvæmdar. Ljóst er að upp kunna að koma vafatilfelli en landlæknir treystir á faglegt og yfirvegað mat hlutaðeigandi sérfræðilæknis í hverju tilviki fyrir sig. Tilkynnt verður með fyrirvara hvenær hægt verður að hefja þessa starfsemi á ný.
Á meðan faraldur COVID-19 geisar er brýnt að endurskipuleggja heilbrigðisþjónustu þannig að unnt sé að sinna nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu jafnframt því að sinna sjúklingum með COVID-19. Í ljósi alvarlegrar stöðu sem upp er komin á Landspítalanum er forgangsröðun nú nauðsynleg. Einn liður í þeirri forgangsröðun er að takmarka eins og kostur er mögulegar sjúkrahúsinnlagnir á næstu vikum. Landlæknir hefur því ákveðið, með vísan til 1. mgr. 5. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, að beina þeim fyrirmælum til viðkomandi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna að frá og með þriðjudeginum 27. október til og með 15. nóvember nk. skuli öllum svokölluðum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum frestað, hvort sem þær eru framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila. Þrátt fyrir þetta eru þegar skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins heimilar 27. og 28. október nk. Þetta er gert í ljósi þess að slíkar aðgerðir geta kallað á komur á bráðamóttöku og/eða sjúkrahúsinnlögn sem getur valdið enn frekara álagi á sjúkrahús en nú þegar er. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæma í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, eru leyfðar. Speglanir í greiningaskyni eru leyfðar en með þeim takmörkunum að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir eins og sepataka. Landlæknir beinir þeim fyrirmælum til skurðlækna og annarra lækna sem ákvörðun þessi tekur til, að þeir upplýsi skjólstæðinga sína og geri aðrar viðeigandi ráðstafanir eins fljótt og verða má. Þess skal þó gætt að brýnar skurðaðgerðir eða greiningarrannsóknir sem ekki þola bið umfram átta vikur verði framkvæmdar. Ljóst er að upp kunna að koma vafatilfelli en landlæknir treystir á faglegt og yfirvegað mat hlutaðeigandi sérfræðilæknis í hverju tilviki fyrir sig. Tilkynnt verður með fyrirvara hvenær hægt verður að hefja þessa starfsemi á ný.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir Búa sig undir tvær erfiðar vikur 79 smit hafa nú verið rakin til hópsýkingar Covid-19 á Landakoti. Starfsmenn Landspítala búa sig nú undir erfiðar tvær vikur hið minnsta, að sögn forstjóra. 26. október 2020 11:47 Leggur til að valkvæðum skurðaðgerðum verði frestað Á upplýsingafundi almannavarna í dag kvaðst Alma Möller, landlæknir, ætla að leggja það til við heilbrigðisráðherra síðar í dag að valkvæðum skurðaðgerðum sem leitt gætu til spítalainnlagnar yrði frestað. 25. október 2020 17:39 „Heilbrigðisstarfsmenn sýndu í fyrstu bylgju hvers þeir eru megnugir“ Alma Möller landlæknir biðlaði á upplýsingafundi Almannavarna og embættis Landlæknis til heilbrigðismenntaðra einstaklinga sem ekki vinna í opinbera heilbrigðiskerfinu að skrá sig í bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar. 25. október 2020 15:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fleiri fréttir Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Sjá meira
Búa sig undir tvær erfiðar vikur 79 smit hafa nú verið rakin til hópsýkingar Covid-19 á Landakoti. Starfsmenn Landspítala búa sig nú undir erfiðar tvær vikur hið minnsta, að sögn forstjóra. 26. október 2020 11:47
Leggur til að valkvæðum skurðaðgerðum verði frestað Á upplýsingafundi almannavarna í dag kvaðst Alma Möller, landlæknir, ætla að leggja það til við heilbrigðisráðherra síðar í dag að valkvæðum skurðaðgerðum sem leitt gætu til spítalainnlagnar yrði frestað. 25. október 2020 17:39
„Heilbrigðisstarfsmenn sýndu í fyrstu bylgju hvers þeir eru megnugir“ Alma Möller landlæknir biðlaði á upplýsingafundi Almannavarna og embættis Landlæknis til heilbrigðismenntaðra einstaklinga sem ekki vinna í opinbera heilbrigðiskerfinu að skrá sig í bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar. 25. október 2020 15:47