13 Reasons Why leikari kemur út sem transkona Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 23. júlí 2021 13:32 Hin 29 ára gamla Tommy Dorfman er komin út sem transkona. Hún sló í gegn í Netflix-þáttaröðinni 13 Reasons Why. Instagram/Tommy Dorfman Leikarinn Tommy Dorfman, sem vakti athygli í hlutverki Ryans Shaver í Netflix-þáttaröðinni 13 Reasons Why, er kominn út sem transkona.
Dorfman kom formlega út í hjartnæmu viðtali við tímaritið Time sem kom út í gær. „Ég er að endurkynna mig sem Tommy Dorfman. Ég nota fornafnið hún. Ég er ennþá leikari, ennþá rithöfundur, ennþá skapandi og segi ennþá sögur en ég er líka kona - transkona,“ sagði hin 29 ára gamla Dorfman í viðtalinu. „Sumir tóku í gegn heimili sín í heimsfaraldrinum, aðrir skiptu um kyn,“ sagði hún og hló. Dorfman segist hafa viljað skipta um kyn í mörg ár en ekki getað það. Það hafi verið ógnvekjandi að hefja ferlið vegna þess að hún hafi rétt verið að hefja leiklistarferil sinn. „Mér líður eins og leiklistarferill minn sé rétt að byrja, því allt sem ég gerði þar til á síðasta ári, var í röngum líkama. Svo mikið af mínum leiklistarferli fór í að fela þennan hluta af sjálfri mér og síðan gæða aðrar persónur lífi. Þannig ég er spennt að fá loksins að leika konur, transkonur og konur almennt.“ Hún elskaði alltaf að leika en þoldi ekki að mæta í vinnuna og fannst það alltaf óþægilegt. Núna skilur hún hvers vegna. „Mér hefur alltaf liðið rosalega kvenlega, hvað sem það nú þýðir. Þannig mér líður ekki eins og ég þurfi að drepa gamla sjálfið mitt og rísa eins og Fönix upp úr öskunni. Ég er ekki önnur manneskja, ég tók ekki einu sinni upp annað nafn. Ég elska nafnið mitt og vil halda því. Ég vil bara gefa því nýtt líf. Ég er líka stolt af manneskjunni sem ég var og það er mikilvægt að viðurkenna hver ég hef verið hingað til.“ Dorfman deildi fréttunum einnig á Instagram-reikningi sínum í gær. „Ég er þakklát hverri einustu transmanneskju sem hefur fetað þennan veg, brotið niður hindranir og hætt lífi sínu til þess að lifa sem þær sjálfar á undan mér.“ Fjöldi fólks skildi eftir athugasemd undir færslu Dorfman henni til stuðnings, þar á meðal mótleikari hennar Brandon Flynn, Riverdale-leikkonan Lili Reinhart, transkonan Gigi Gorgeous, Modern Family-leikarinn Jessie Tyler og tískurisinn Marc Jacobs. View this post on Instagram A post shared by tommy dorfman (@tommy.dorfman)
Hinsegin Málefni transfólks Hollywood Mest lesið Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Lífið Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Lífið „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Lífið Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Lífið Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Lífið samstarf Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Fleiri fréttir Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Sjá meira