Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 30. janúar um að erlendur maður sem á sambýliskonu og stjúpbarn hér á landi sæti gæsluvarðhaldi til 9. febrúar.
Í úrskurði Landsréttar kemur fram að hann hafi verið í felum hér á landi og að lögregla hafi haft afskipti af honum vegna ofbeldis gegn konunni:
„Í greinargerð varnaraðila til Landsréttar er rakið að hann eigi sambýliskonu hér á landi og stjúpbarn. Samkvæmt dagbók lögreglu, sem lögð var fyrir Landsrétt, voru höfð afskipti af varnaraðila 31. október 2022 vegna ætlaðs ofbeldis hans í garð sambýliskonu og er tekið fram að á heimilinu hafi einnig verið barn. Í dagbókinni er meðal annars haft eftir varnaraðila að hann viti af eftirlýsingu sinni og hann hafi reynt að vera á Íslandi í felum. Þá ætti varnaraðili ekki lögheimili á Íslandi og væri ekki með atvinnu.“
Grunað brot mannsins sem er grundvöllur gæsluvarðhaldsins er hins vegar af öðru tagi og er það rakið í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms sem Landsréttur staðfestir. Segir þar að maðurinn sé grunaður um að hafa vorið 2020 stolið greiðslukorti af öðrum einstaklingi og notað það 59 sinnum með ýmsum úttektum úr hraðbönkum og viðskiptum við verslanir. Nema fjársvikin um 13.300 evrum eða andvirði um tveggja milljóna íslenskra króna. Brotið var framið erlendis en við því liggur í því landi 8 ára fangelsi.
Þann 18. janúar var farið fram á handtöku mannsins á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar með vísan til ákvæða laga um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra brota. Fallist hefur verið á framsalsbeiðnina.
Það er mat dómstólanna að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt til að tryggja viðveru mannsins þar til afhending á honum til erlendra yfirvalda fer fram.
Sjá nánar hér.