Prins Póló og Berglind búin að selja Karlsstaði Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 21. júlí 2021 15:13 Þau hjónin bjuggu á Karlsstöðum frá árinu 2014, ásamt börnum sínum þremur. Hjónin Svavar Pétur Eysteinsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, og Berglind Häsler hafa gengið frá sölu á jörð sinni, Karlsstöðum í Berufirði. Þar hafa hjónin rekið gistiheimili og veitingastað þar sem mikið hefur verið um tónleikahald. Þau munu þó taka vörumerkið Havarí með sér, sem áfram mun standa fyrir taumlausa gleði og listgjörninga.
Vísir greindi frá því í byrjun árs 2019 að Karlsstaðir væru komnir á sölu. Þá var ásett verð 220 milljónir króna, en hafði þá hækkað um tæpar 200 milljónir á 14 árum. Hjónin keyptu jörðina árið 2014. Þau settust að ásamt börnum sínum þremur og fóru í miklar endurbætur. Þau byggðu býlið upp sem ferðaþjónustu undir nafninu Havarí, þar sem stunduð var grænmetisrækt, veitingaþjónusta, rekstur gistiheimilis og matvælaframleiðsla. „Við keyptum þetta bara sem eyðibýli og lögðum alla okkar sál, tíma og sparifé í að byggja þetta upp og við það jókst verðgildið,“ segir Svavar í samtali við Vísi. Það hefur verið mikið líf og fjör á Karlsstöðum undanfarin sumur.Fasteignamiðstöðin Hlátur og grátur við uppbygginguna „Allt frá byrjun voru stórfjölskylda okkar og vinir tilbúnir að taka þátt í þessu með okkur og stundirnar sem við áttum þarna saman voru ævintýralega magnaðar. Handtökin voru nokkur en eitt skref í einu þá gekk þetta upp. Það var mikið hlegið en líka grátið enda ekki átakalaust að reisa þennan fagra bæ upp úr öskustónni.“ Samkvæmt nýjustu auglýsingu inni á fasteignavef Vísis má sjá að settar voru 130 milljónir á eignina sem er töluvert lægra en árið 2019. „Ég held að það verð sem var sett á upphaflega hafi kannski verið sett á af tilfinningalegum ástæðum,“ segir Svavar en tekur fram að allir aðilar hafi gengið sáttir frá borði eftir viðskiptin. Mikið hefur verið um dýrðir á Karlsstöðum sem fyllst hafa af lífi á sumrin frá því það opnaði. Hljómsveitirnar FM Belfast, Hipsumhaps, Góss og tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti voru meðal þeirra sem spiluðu á staðnum síðasta sumar. Fjölmargir tónlistarmenn hafa troðið upp á Karlsstöðum.Fasteignamiðstöðin „Við eigum eftir að sakna sveitarinnar og alls góða fólksins fyrir austan sem tók okkur opnum örmum. Við göngum sátt og hamingjusöm frá borði. Þökkum öllum sem sóttu okkur heim og óskum nýjum bændum á Karlsstöðum alls hins besta í framtíðinni.“ Að sögn Svavars eru nýjir eigendur ungt og skapandi par sem hafa nú þegar tekið við keflinu. Svavar og Berglind munu þó halda vörumerkinu Havarí, sem áfram verður tengt listviðburðum og listrænum gjörningum. „Havarí mun áfram halda úti hressandi galleríi, bæði á netinu og í Faxafeni 10 þar sem fólk getur eignast ódauðleg listaverk eftir prinsinn og hans hirð. Ef einhverjum vantar hressleika í sitt líf þá er aldrei að vita nema prinsinn geti orðið við því. Þannig við hjónin höldum bara okkar striki.“ Svavar og Berglind munu áfram halda úti listagalleríinu Havarí.Havarí „Ágætt að liggja bara úti í móa og tyggja strá“ Svavar hafði þó greint frá því fyrr á árinu að til stæði að halda rekstrinum á Karlsstöðum í algjöru lágmarki nú í sumar. Hann segir það þó ekki hafa haft neitt með fyrirhugaða sölu að gera, heldur hafi hjónin verið önnum kafin í öðrum verkefnum. „Við erum búin að eiga sjö góð sumur, en maður hefur ekkert gert mikið annað á sumrin en að taka á móti gestum. Þannig við vildum bara eiga aðeins meira „introvert“ sumar og slaka á og njóta. Það er ágætt að fá að liggja bara úti í móa og tyggja strá,“ segir Svavar. Hann segir óvíst hvar fjölskyldan muni setjast að næst, en þau séu alltaf með annan fótinn í Reykjavík. Það er þó ýmislegt á döfinni hjá Prins Póló en hann mun meðal annars koma fram á Hornafirði um helgina. „Ég er alltaf að grípa í kórónuna annað slagið svona þegar eftir því er leitað. Þegar skemmtileg tilboð berast þá er alltaf gaman að hitta gott fólk og henda í gigg.“
Tónlist Múlaþing Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Bíó og sjónvarp Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Tónlist Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Fleiri fréttir Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Sjá meira