Telja að stýrivextir nái 4,25 prósentum árið 2023 Eiður Þór Árnason skrifar 20. október 2021 09:32 Landsbankinn birti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í dag. Vísir/Vilhelm Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti á þessu og næsta ári. Reiknað er með samfelldum hagvexti næstu þrjú árin, 5,5% á næsta ári, 1,7% árið 2023 og 2% árið 2024. Áætlað er að verg landsframleiðsla nái sama stigi og fyrir faraldurinn undir lok næsta árs.
Þetta kemur fram í nýrri þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2021 til 2024. Verðbólga hefur reynst þrálátari en horfur voru á í maí og skýrist það fyrst og fremst af verðhækkunum á íbúðamarkaði. Spáir hagfræðideildin að verðbólga nái fljótlega hámarki og gangi rólega niður á næsta ári samhliða því að áhrif faraldursins á hrávöruverð og flutningskostnað fjari út. Verðbólga nái hámarki í lok árs Útlit er fyrir að verðbólga nái hámarki undir lok þessa árs en hjaðni síðan og verði komin niður í 3% á fjórða ársfjórðungi næsta ári. Reiknar hagfræðideildin með því að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans á þriðja fjórðungi 2023 og verðbólgan verið í kringum markmið út 2024. Telur Landsbankinn að kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga muni knýja á um hækkun stýrivakta í varfærnum og ákveðnum skrefum. Er því spáð að stýrivextir verið hækkaðir samfellt til þriðja ársfjórðungs 2023 og að þá verði þeir orðnir 4,25%. Þá er reiknað með því að verðbólgumarkmiðinu verði náð, vextir taki að lækka á ný og verði komnir í 3,5% í lok spátímans. Stýrivextir standa nú í 1,5%. Tvöfallt fleiri ferðamenn á næsta ári Gert er ráð fyrir að áhrif mikilla loðnuveiða á næsta ári muni hafa 1,7 prósentustiga jákvæð áhrif á hagvöxt, að öllu breyttu. Hagfræðideildin spáir því að um 720 þúsund erlendir ferðamenn komi til landsins í ár, 1,5 milljón á næsta ári, 1,8 milljón árið 2023 og 2,1 milljón árið 2024. Landsframleiðslan hér á landi jókst um 3,5% á fyrri helmingi árs 2021. Landsbankinn spáir 5,1% hagvexti á þessu ári eftir 6,5% samdrátt á árinu 2020. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi haldi áfram að lækka út árið 2024, verði 4,8% í lok yfirstandandi árs og að meðaltali 4,7% á næsta ári, 4,1% árið 2023 og 3,5% árið 2024. Hagfræðideild Landsbankans telur að vísitala íbúðaverðs hækki um 14% í ár milli ársmeðaltala en að hægi verulega á hækkunartaktinum næstu ár. Spáð er 9% hækkun á næsta ári og svo á bilinu 4 til 5% árin 2023 og 2024.
Efnahagsmál Seðlabankinn Verðlag Ferðamennska á Íslandi Íslenskir bankar Íslenska krónan Tengdar fréttir Aukinn hagvöxtur og hraðari efnahagsbati þökk sé loðnunni Greining Íslandsbanka telur að aukin loðnuveiði komi til með að auka hagvöxt um 0,8 prósentustig á næsta ári og ýta undir efnahagsbata eftir faraldurinn. 5. október 2021 16:07 Seðlabankinn hækkar enn stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5 prósent. 6. október 2021 08:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Viðskipti innlent Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira
Aukinn hagvöxtur og hraðari efnahagsbati þökk sé loðnunni Greining Íslandsbanka telur að aukin loðnuveiði komi til með að auka hagvöxt um 0,8 prósentustig á næsta ári og ýta undir efnahagsbata eftir faraldurinn. 5. október 2021 16:07
Seðlabankinn hækkar enn stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5 prósent. 6. október 2021 08:30