Skörpustu myndirnar af stærstu smástirnum sólkerfisins Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2021 12:00 Ceres (t.v.) og Vesta (t.h.), tvö stærstu fyrirbærin í smástirnabeltinu á milli Mars og Júpíters. Smástirnin reyndust þau eðlisþyngstu af þeim sem voru skoðuð í rannsókninni. ESO/Vernazza et al./MISTRAL algorithm (ONERA/CNRS) Myndir sem stjörnufræðingar hafa náð af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu í sólkerfinu okkar eru þær skörpustu til þessa. Þær varpa ljósi á fjölbreytta lögun og efnasamsetningu smástirnanna.
Milljarðar hnullunga af ýmsum stærðum og gerðum er að finna í smástirnabeltinu sem liggur á milli reikistjarnanna Mars og Júpíters. Þau stærstu eru á stærð við lítil tungl en þau minnstu eru aðeins hnullungar úr grjóti og ís. Talið er að smástirnin séu leifar af efnisskífunni sem sólkerfið myndaðist úr fyrir meira en fjórum og hálfum milljarði ára. Nú hefur hópur stjörnufræðinga náð skýrum myndum af 42 af stærstu smástirnunum í beltinu með VLT-sjónauka Evrópsku stjörnustöðvarinnar á suðurhveli (ESO) í Atacama-eyðimörkinni í Síle. Aldrei áður hafa náðst svo skýrar myndir af svo stórum hópi smástirna, að því er segir í tilkynningu frá ESO. Athuganir á smástirnunum hafa verið heldur takmarkaðar fram að þessu. Af þeim stærstu voru teknar nákvæmar myndir af Ceres, Vestu og Lutetiu í Dawn- og Rosettu-leiðöngrum bandarísku og evrópsku geimstofnanna. Af þessum sökum hefur lítið verið vitað um nákvæma lögun smástirnanna og eðlismassa þeirra. Í ljós kemur að þau falla almennt séð í tvo meginflokka: nánast hnöttótta hnullunga og ílengri hnullunga. Í fyrri flokkinn falla smástirni eins og Ceres og Hygiea en í þann síðari fellur Kleópatra sem er í laginu eins og bein fyrir hund. Myndir af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu. Myndirnar voru teknar með SPHERE-mælitækinu á VLT-sjónaukanum. Það er næmt fyrir sýnilegu og nærinnrauðu ljósi.ESO/M. Kornmesser/Vernazza et al./MISTRAL algorithm (ONERA/CNRS) Þéttari en demantar Flest smástirnin 42 sem voru skoðuð með sjónaukanum eru stærri en hundrað kílómetrar að þvermáli. Myndir náðust af tuttugu af þeim tuttugu og þremur í beltinu sem eru stærri en tvö hundruð kílómetrar. Stærstu smástirnin sem voru skoðuð voru Ceres og Vesta sem eru annars vegar 940 og hins vegar 520 kílómetrar að þvermáli. Þau tvö minnstu voru Úranía og Ásónía sem eru aðeins um níutíu kílómetrar að þvermáli hvort um sig. Þegar vísindamennirnir báru saman nákvæmar upplýsingar um nákvæma lögun fyrirbæranna og mælingar á massa þeirra gátu þeir reiknað út eðlismassa þeirra. Verulegur munur reyndist á fyrirbærunum. Fjögur eðlisléttustu smástirnin, þar á meðal Lamberta og Sylvía reyndust með eðlismassa á við kolamola, um 1,3 grömm á rúmsentímetra. Þau eðlisþyngstu eins og Síka og Kallíópa eru þéttari en demantur, um þrjú og hálft kíló á rúmsentímetra. Ásónía (t.v.) og Úranía (t.h.), tvö smæstu smástirnin sem teknar voru myndir af. Þau eru um 90 kílómetrar að þvermáli.ESO/Vernazza et al./MISTRAL algorithm (ONERA/CNRS) Mynduðust líklega á ólíkum stöðum í sólkerfinu Þessi mikli munur á eðlismassa er sagður benda til þess að efnasamsetning smástirnanna geti verið ákaflega ólík innbyrðis. Það gefur aftur vísbendingar um uppruna þeirra. Niðurstöður athugananna benda til þess að smástirnin hafi ferðast töluvert til frá því að þau mynduðust fyrst. Josef Hanus frá Karlsháskóla í Prag í Tékklandi sem er einn höfunda greinar um rannsóknina segir aðeins hægt að skýra muninn á efnasamsetningu smástirnanna með því að þau hafi myndast á ólíkum stöðum í frumsólkerfinu. Eðlisléttustu fyrirbærin hefðu þá myndast utan við braut Neptúnusar en síðan ferðast innar í sólkerfið með tíð og tíma.
Geimurinn Vísindi Tengdar fréttir Nýjar myndir af skæru blettunum á Ceres Blettirnir á dvergplánetunni hafa vakið gífurlega forvitni vísindamanna jafnt sem annarra. 10. september 2015 13:40 Geimfarið Dawn á sporbaug um Ceres Dawn hefur verið sjö og hálft ár á leiðinni til dvergreikistjörnunnar Ceres. 6. mars 2015 15:43 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira
Nýjar myndir af skæru blettunum á Ceres Blettirnir á dvergplánetunni hafa vakið gífurlega forvitni vísindamanna jafnt sem annarra. 10. september 2015 13:40
Geimfarið Dawn á sporbaug um Ceres Dawn hefur verið sjö og hálft ár á leiðinni til dvergreikistjörnunnar Ceres. 6. mars 2015 15:43