Fáir þekkja einn af þeim sex sem hefur „lifað“ allan Klopp-tímann hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2021 13:30 Taiwo Awoniyi á fullri ferð með boltann í leik með Union Berlin á móti Wolfsburg á dögunum. Getty/Mathias Renner Jürgen Klopp hefur byggt upp nýtt lið á Anfield og fjöldi leikmanna hafa bæði komið og farið síðan hann tók við. Það eru því ekki margir sem hafa verið hjá félaginu alla hans knattspyrnustjóratíð.
Aðeins sex leikmenn hafa verið leikmenn Liverpool allan stjóratíma Jürgen Klopp á Anfield en það eru Joe Gomez, James Milner, Jordan Henderson, Roberto Firmino, Divock Origi og Taiwo Awoniyi. Þessi fyrstu fimm kannast nú flestir við enda að spila reglulega með Englandsmeisturunum. Marga rekur hins vegar í rogastans þegar þeir sjá síðasta nafnið í þessari upptalningu. Það er kannski ekkert skrýtið því hinn 23 ára gamli Nígeríumaður hefur aldrei spilað fyrir Liverpool. Hann hefur aftur á móti verið leikmaður félagsins frá árinu 2015. Liverpool loanee Taiwo Awoniyi is enjoying life in the Bundesliga with Union Berlin. The Nigerian striker now has five goals in 12 games. pic.twitter.com/SILokrzbTd— Anfield Watch (@AnfieldWatch) January 10, 2021 Awoniyi kom til Liverpool í ágúst 2015 aðeins sautján ára gamall eftir að hafa verið uppgötvaður hjá Imperial Soccer Academy. Hann er 183 sentímetra framherji og var unglingastjarna. Vandamál með að fá atvinnuleyfi í Englandi hefur meðal annars séð til þess að Taiwo Awoniyi hefur aldrei spilað fyrir sitt félag. Liverpool hefur nú lánað hann sjö sinnum á þessum rúmu fimm árum en á þessu tímabili spilar Taiwo Awoniyi með Union Berlin í þýsku deildinni og er að gera góða hluti. Það er einmitt frammistaðan hans í vetur sem hefur komið nafni hans aftur í umræðuna. Taiwo Awoniyi er með 5 mörk og 2 stoðsendingar í 13 leikjum. Max Kruse, 11 direct goal involvements. Injured Enter: Taiwo Awoniyi pic.twitter.com/omqjf65EoU— Bundesliga English (@Bundesliga_EN) January 9, 2021 Öll þessi fimm mörk og þessar tvær stoðsendingar hafa komið í síðustu átta leikjum en hann kom ekki að marki með Union Berlin liðinu fyrr en undir lok nóvember. Það er þessi frammistaða að undanförnu sem þykir benda til þess að strákurinn gæti mögulega átt framtíð í Liverpool liðinu. Taiwo Awoniyi er með samning við Liverpool til 30. júní 2023 og nú er að sjá hvort hann nái að spila fyrir sitt félag áður en samningurinn rennur út. Fyrir þá sem vilja vita meira um sögu Taiwo Awoniyi þá má finna hana í grein á First Time Finish vefnum eða með því að smella hér.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira