Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Kjartan Kjartansson skrifar 21. september 2021 14:52 Joe Biden Bandaríkjaforseti í pontu á 76. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. AP/Eduardo Munoz Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali.
Lýsti Biden þessum áratug sem úrslitaáratug fyrir heiminn í ávarpi sínu við upphaf allsherjarþingsins sem fer fram í New York. Rauð viðvörunarljós logi vegna loftslagsvárinnar og heimsbyggðin takist enn á við missi og harm í heimsfaraldri kórónuveirunnar. Hvatti forsetinn ríki heims til þess að koma með aukinn metnað inn í loftslagsráðstefnu SÞ í Glasgow í nóvember sem hann ætlar sjálfur að vera viðstaddur. Sagði hann heiminn nálgast vendipunkt hvað varðar öfgakennt veðurfar sem kosti mannslíf og ómælda milljarða í tjón. Forsetatíð Donalds Trump reyndi verulega á áratugalangt bandalag Bandaríkjanna og annarra vestrænna þjóða. Biden lofaði að Bandaríkin væru snúin aftur á alþjóðavettvang þegar hann tók við embættinu í janúar en umdeilanlegt er hvort að hann hafi staðið við þau orð. Ákvörðun Biden um að draga allt bandarískt herlið frá Afganistan hefur mælst misjafnlega fyrir á meðal bandalagsríkja en talibanar sölsuðu undir sig völdin í landinu áður en vestræn ríki náðu að koma öllum þeim sem þau vildu úr landi. Undanfarna daga hefur töluverð illska hlaupið í samskipti Bandaríkjanna við Frakkland, eitt elsta bandalagsríki þeirra, eftir að bandarísk og bresk stjórnvöld fengu Ástrali til að kaupa frekar af þeim kafbáta en Frökkum. Frönsk stjórnvöld kölluðu meðal annars sendiherra sinn heim frá Bandaríkjunum til að mótmæla því sem þau telja undirferli bandamanna sinna. Þrátt fyrir það lagði Biden áherslu á samvinnu við bandamenn í ávarpi sínu í New York í dag. „Til þess að við getum séð fyrir okkar eigin fólki verðum við einnig að eiga í djúpstæðum samskiptum við umheiminn,“ sagði Bandaríkjaforseti. Fréttin verður uppfærð.
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Loftslagsmál Afganistan Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Joe Biden Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Sjá meira